Innlent

Hlynur stendur í vegi fyrir nýrri skólplögn

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Nágrannaerjur í miðborginni.
Nágrannaerjur í miðborginni. Vísir/GVA
„Ég gagnrýni það úrræðaleysi í kerfinu sem hefur einkennt allt þetta mál. Hjá borginni eru allir af vilja gerðir en segjast ekkert geta gert,“ segir Kristín Dýrfjörð, íbúi í Miðstræti 8a í miðborg Reykjavíkur.

Sú staða er komin upp að íbúar í Miðstræti 8a og 8b þurfa að ráðast í dýrar og sértækar framkvæmdir til að finna lausn á frárennsli skólps þar sem nágrannar þeirra á Laufásvegi 7 heimila ekki að farið sé inn á þeirra lóð til endurnýjunar á bilaðri skólplögn.

Forsaga málsins er sú að í mars síðastliðnum kom í ljós að lögnin sem liggur að hluta í gegnum lóðina Laufásveg 7 var farin að leka og barst skólpmengað vatn inn í nærliggjandi hús. Starfsmönnum Veitna tókst að stöðva lekann án þess að fara inn á lóð nágrannanna en eftir stendur að ráðast þarf í varanlega viðgerð.

„Vandamálið er að þar sem ekkert deiliskipulag gildir fyrir svæðið þá eru engar kvaðir á lóðinni varðandi lagnir,“ segir Kristín. Hún bendir á að lóðir í miðbænum séu líka að miklu leyti eignarlóðir og réttur eigenda því mikill. „Okkur hefur verið bent á að við gætum hafið málaferli og byggt á hefðarrétti en slíkt tæki langan tíma og við viljum alls ekki bíða með lausn málsins. Það þarf því að breyta frárennslinu frá húsinu og gera breytingar á íbúðum, meðal annars brjóta þykkan hlaðinn steinvegg og fara í gegnum undirstöður hússins.“

Íbúar á Laufásvegi 7 voru tilbúnir að fallast á lausn í málinu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Lausnin fólst í því að grafnar yrðu tvær til þrjár holur og þess freistað að laga lögnina með því að tengja þar á milli. Kristín segir sum skilyrðanna hafa verið óásættanleg.

Sigríður Harðardóttir, sem býr á Laufásvegi 7, segir að þrátt fyrir að rétturinn í málinu sé algjörlega þeirra hafi þau viljað rétta fram hjálparhönd en á hana hafi verið slegið. „Síðan kemur í ljós að til að laga lögnina þyrfti að grafa mjög nálægt stórum hundrað ára gömlum hlyn sem er á lóðinni okkar. Garðyrkjustjóri borgarinnar hefur metið það svo að það yrði ekki gert nema með því að skerða rætur trésins sem sé mjög varasamt.“ Sigríður bendir á að til sé lausn á málinu, svokölluð dælulausn, sem þegar hafi verið notuð í öðru húsi í Miðstræti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×