Innlent

Dómur landamæravarðar vegna uppflettinga í LÖKE ómerktur

Jóhann Óli Eiðsson og Þórdís Valsdóttir skrifa
Húsnæði Landsréttar.
Húsnæði Landsréttar. Vísir/Hanna
Landsréttur hefur ómerkt dóm yfir landamæraverði sem ákærður var fyrir að fletta fyrrverandi maka upp í LÖKE-kerfinu. Játning konunnar þótti ekki nægjanlega skýr og var dómurinn því ómerktur og málinu vísað heim í hérað á ný.

Konan var ákærð fyrir brot í opinberu starfi sem landamæravörður. Hún hafði margsinnis flett upp málum tveggja einstaklinga í lögreglukerfinu, LÖKE, á ákveðnu tímabili árin 2015 til 2016.  Konan hafði átt í samskiptum við einstaklingana vegna lögreglumáls og skoðaði þar upplýsingar um þá og lögreglumál þeim tengd án þess að uppflettingarnar tengdust starfi hennar sem landamæravörður. Með uppflettingunum hafði konan misnotað stöðu sína með þeim afleiðingum að hallaði á rétti þeirra einstaklinga sem hún fletti upp.

Konan játaði fyrir héraðsdómi að „hafa gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru“ og var gert að greiða 100 þúsund króna sekt vegna uppflettinganna. Í Landsrétti var þó talið að jafnvel þó hún hafi játað að hafa flett upp málunum í LÖKE, án þess að það tengdist starfi hennar sem landamæravörður, hafi hún ekki játað að hafa hallað á réttindi einstakra manna eða hins opinbera með þeirri háttsemi. Játning hennar var því ekki talin skýlaus og ekki unnt að fara með málið sem játningarmál. 


Tengdar fréttir

Ekki hægt að rekja hver skoðar gögnin

Málaskrárkerfi dómstólasýslunnar er ófullnægjandi. Dæmi eru um að lýsingar á áverkum á kynfærum kvenna séu opnar öllum starfsmönnum dómstóla. Ekki er hægt að rekja leit starfsmanna sem geta afritað gögn án þess að nokkur viti.

Sektuð vegna flettinga í LÖKE

Kona á fertugsaldri var á síðasta degi nóvembermánaðar dæmd til greiðslu sektar fyrir brot í opinberu starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×