Golf

Simpson vann örugglega á Players

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Simpson sveiflar kyflunni í dag
Simpson sveiflar kyflunni í dag vísir/getty
Bandaríkjamaðurinn Webb Simpson sigraði Players mótið í golfi sem kláraðist í nótt. Frábær spilamennska á öðrum hring lagði grunninn að sigrinum.

Simpson var með sjö stiga forystu fyrir loka hringinn í dag og það komst enginn nálægt því að ógna honum neitt að ráði. Hann spilaði mjög stöðugt golf í dag, paraði fyrstu sex holurnar áður en hann fékk fugl og skolla á 7. og 8. holu. Hann byrjaði seinni níu holurnar á skolla og fugli og paraði svo næstu fjórar. Fugl á 16. holu kom honum í sex högga forystu með tvær holur eftir og sigurinn nokkuð öruggur.

Síðasta holan reyndist honum þó erfið, en boltinn fór í vatn úr upphafshögginu. Hann fékk þar tvöfaldan skolla en hann kom ekki að sök, lauk leik á 18 höggum undir pari með fjögurra högga forystu.

Simpson er fyrrum nemandi í Wake Forest háskólanum í Bandaríkjunum, þeim sama og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gekk í.





Danny Lee, sem var í öðru sæti fyrir síðasta hringinn féll niður í 7. -10. sæti. Hann fór hringinn í dag á pari á meðan allir kylfingarnir í kringum hann fóru á minnsta kosti þrjú högg undir parið.

Næstir á eftir Simpson í dag voru landar hans Jimmy Walker og Xander Schauffele ásamt Suður-Afríkumanninum Charl Schwartzel. Þeir voru allir á fjórtán höggum undir pari.

Tiger Woods byrjaði hreint út sagt ótrúlega í dag og fékk þrjá fugla í röð á fyrstu fimm holunum og bætti öðrum við á níundu holu og var kominn á 12 högg undir parið eftir níu holur sem skilaði honum í baráttuna um annað sætið, en Simpson var nokkuð öruggur í forystu sinni í dag.

Tveir fuglar til viðbótar á 11. og 12. braut settu Woods í frábæra stöðu, 14 högg undir pari með fimm holur eftir. Hann fékk hins vegar skolla á 14. holu og tvöfaldan skolla á þeirri 17. og lauk leik á þremur höggum undir pari í dag og samtals á 11 höggum undir pari.

Það skilaði honum í 11.-16. sæti mótsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×