Viðskipti erlent

Eigandi Grímsstaða á Fjöllum orðinn ríkasti maður Bretlandseyja

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jim Ratcliffe er auðugasti maður Bretlandseyja. Hann er eigandi þó nokkurra jarða hér á landi, meðal annars Grímsstaða á Fjöllum.
Jim Ratcliffe er auðugasti maður Bretlandseyja. Hann er eigandi þó nokkurra jarða hér á landi, meðal annars Grímsstaða á Fjöllum. vísir/getty
Jim Ratcliffe, sem keypti Grímsstaði á Fjöllum auk nokkurra jarða í Vopnafirði árið 2016, er orðinn ríkasti maður Bretlandseyja samkvæmt úttekt sem Sunday Times birti um helgina og fjallað er um á vef Guardian.

Auðæfi hans eru nú metin á 21 milljarð punda, en voru í fyrra metin á 15 milljarða punda. Aukin auðæfi hans eru rakin til þess að virði efnaframleiðslufyrirtækis hans, Ineos Group Limited, hefur hækkað á milli ár. 21 milljarður punda samsvarar tæpum þrjú þúsundum milljörðum króna.

Kaup Ratcliffe á Grímsstöðum á Fjöllum og jörðum í Vopnafirði, sem liggja við gjöfular laxveiðiár, vöktu talsverða athygli á sínum tíma.



Mikil umsvif efnaframleiðslurisa



Umhverfismál og varðveisla villta laxins í Norður-Atlantshafi var uppgefin ástæða Ratcliffe fyrir kaupunum en vegna umsvifa Ineos hafa erlendir fjölmiðlar í gegnum tíðina efast um að umhverfismál séu Ratcliffe sérstaklega hugleikin en fyrirtækið er efnaframleiðslurisi með starfsemi í öllum heimshlutum.

Fram kom í umfjöllun Fréttablaðsins um Ratcliffe í lok árs 2016 þegar nýlega hafði verið greint frá kaupum hans á Grímsstöðum að hann virtist vera hálfgerður huldumaður í alþjóðlegu viðskiptalífi þar sem lítið bæri á honum persónulega öfugt við umsvif viðskiptaveldis hans.

Þá sagði jafnframt í umfjöllun Fréttablaðsins að Ratcliffe væri lýst sem hlédrægum og dulum í bandaríska blaðinu Financial Times.

Kínverjin Huang Nubo hafði augastað á Grímsstöðum á Fjöllum en stjórnvöld bönnuðu kaup hans á sínum tíma. Nokkrum árum síðar keypti Jim Ratcliffe jörðina.vísir/pjetur

JR og Dr. No

Þar hefði einnig komið fram að Ratcliffe hafi verið kallaður JR eftir þekktri persónu úr sápuóperunni Dallas auk þess sem Dr. No hefur verið tengt við hann, og þar með vísað í eitt þekktasta illmenni kvikmyndasögunnar. Ekki var þó tiltekið í umfjöllun FT í hvaða samhengi þessi viðurnefni voru tengd við eiganda Grímsstaða á Fjöllum.

Í janúar 2017 greindi Fréttablaðið svo frá því að Ratcliffe vildi kaupa jarðir í Þistilfirði sem væru með veiðirétt í Hafralónsá. Að ánni liggja fimmtán jarðir og kom fram í Fréttablaðinu að tilraunir Ratcliffe til jarðarkaupanna hefðu leitt til deilumál innan sveitarinnar og jafnvel innan fjölskyldna.



Á enn 60 prósent í Ineos



Í frétt Guardian kemur fram að Ratcliffe hafi alist upp í félagslegu húsnæði ekki langt frá Manchester. Hann stofnaði Ineos árið 1998 og á enn 60 prósenta hlut í fyrirtækinu sem skilað 2,2 milljörðum punda í hagnað á síðasta ári.

Ineos hyggur á vinnslu á jarðgasi með svokölluðu bergbroti (e. fracking) víða um Bretland en slík vinnsla er vægast sagt umdeild aðferð við orkuöflun. Hefur áformum Ineos verið mótmælt í Bretlandi og mótmælendur meðal annars brugðið á það ráð í aðgerðum sínum að leggjast fyrir framan vinnuvélar fyrirtækisins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×