Erlent

Göngumenn voru að fá sér morgunmat þegar fjallið byrjaði að gjósa

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Göngumennirnir voru skammt frá þegar eldgosið byrjaði.
Göngumennirnir voru skammt frá þegar eldgosið byrjaði.
Göngumenn á fjallinu Merapi í Indónesíu voru að fá sér morgunmat í rólegheitunum þegar fjallið byrjaði að gjósa nú um helgina.

Eins og sést á meðfylgjandi myndbandi voru göngumennirnir skammt frá þeim stað fjallsins þar sem það byrjaði að spúa ösku og gufum upp í fimm kílómetra hæð en Merapi er þekkt eldfjall. Árið 2010 gaus fjallið og létust þá um 300 manns.

Í eldgosinu nú var íbúum sem búa í fimm kílómetra radíus við fjallið gert að yfirgefa heimili sín þegar eldgosið byrjaði.

Göngumennirnir sem voru að útbúa morgunmatinn á föstudag komust svo heilir á húfi niður af fjallinu, auk annarra göngumanna sem voru á Merapi en þeir voru alls um 120. Það var göngumönnunum til happs sem sjást í myndbandinu að vindur blés í suður burtu frá mönnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×