Viðskipti innlent

Nína tekur við af Gunnlaugi á Selfossi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nína Guðbjörg Pálsdóttir hefur starfað í 31 ár hjá Landsbankanum.
Nína Guðbjörg Pálsdóttir hefur starfað í 31 ár hjá Landsbankanum. Landsbankinn
Nína Guðbjörg Pálsdóttir og Sigrún Sæmundsdóttir munu í byrjun júlí taka við stjórn útibúa Landsbankans á Selfossi annars vegar og í Hamraborg í Kópavogi hins vegar. Báðar hafa þær mikla reynslu af störfum í fjármálaþjónustu.

Nína tekur við starfi útibússtjóra á Selfossi af Gunnlaugi Sveinssyni sem lætur af störfum fyrir aldurs sakir. Nína hefur starfað í Landsbankanum í 31 ár. Frá 2004 til 2010 var hún útibússtjóri á Selfossi en frá 2011 til 2018 var hún forstöðumaður á Einstaklingssviði Landsbankans og síðan sérfræðingur í Áhættustýringu.

Gunnlaugur, sem er á 68. aldursári, tók við sem útibússtjóri árið 2010 þegar 34 sóttu um starfið. Hann hefur verið í framlínu í félagsstörfum bæði hjá FH og Selfoss í gegnum tíðina en liðin eigast einmitt við í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta þessa dagana og mætast í Hafnarfirði í kvöld.

Sigrún Sæmundsdóttir tekur við stjórn útibús Landsbankans í Hamraborg af Guðrúnu Ægisdóttur sem mun hefja störf í viðskiptalausnum á Einstaklingssviði bankans. Sigrún hefur rúmlega 20 ára reynslu af bankastörfum. Hún hefur unnið í 15 ár hjá Landsbankanum sem sérfræðingur, deildarstjóri og forstöðumaður, m.a. á Einstaklingssviði. Sigrún lauk námi í iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla Íslands árið 1996 og B.Sc. prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2006.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×