Fótbolti

Messi: Skelfilegt ef Neymar fer til Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi og Neymar voru frábærir saman.
Messi og Neymar voru frábærir saman. vísir/getty
Það verður mikið skrifað um það á næstu misserum að Brasilíumaðurinn Neymar sé að fara til Real Madrid en þær sögusagnir eru ekki nýjar af nálinni.

Samt er Neymar aðeins búinn að vera hjá PSG í eitt ár en félagið gerði hann að langdýrasta leikmanni allra tíma síðasta sumar er það keypti hann frá Barcelona á 200 milljónir punda.

Neymar spilaði með Barcelona í fjögur ár og stjarna Börsunga, Lionel Messi, verður ekki hrifinn ef Neymar fer til erkifjendanna.

„Það væri skelfilegt því hann skiptir Barcelona miklu máli og vann marga titla með okkur. Það yrði mikill skellur fyrir alla hér ef hann færi þangað og myndi styrkja þá,“ sagði Messi.

Það er aftur á móti ekkert fararsnið á Messi sem segist ekki þurfa að fara til annars félags til þess að sanna eitthvað.

„Ég hef engan áhuga á að fara. Ég verð ekkert betri á því að spila annars staðar. Ég er hjá besta liði í heimi. Að spila með öðru liði og reyna að vinna eitthvað annars staðar mun ekki sanna neitt,“ sagði Argentínumaðurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×