Viðskipti innlent

Stýrivextir Seðlabankans óbreyttir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson er seðlabankastjóri. VÍSIR/ANTON BRINK
Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum. Þetta þýðir að meginvextir bankans á sjö daga bundnum innlánum verða áfram 4,25 prósent.

„Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í maíhefti Peningamála eru horfur á að hagvöxtur verði aðeins minni í ár en í fyrra. Fer þar saman hægari vöxtur útflutnings og minni vöxtur innlendrar eftirspurnar. Þetta er áþekkur hagvöxtur og gert var ráð fyrir í febrúarspá bankans og líkt og þá er talið að hann minnki frekar á næstu tveimur árum.

Verðbólga var 2,5% á fyrsta fjórðungi ársins og 2,3% í apríl. Undirliggjandi verðbólga er á svipuðu róli. Verðbólga hefur því í stórum dráttum verið í samræmi við 2½% verðbólgumarkmið Seðlabankans síðustu mánuði. Áfram hefur dregið úr árshækkun húsnæðisverðs en gagnstæð áhrif gengisbreytinga krónunnar á verðbólguna hafa dvínað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengi krónunnar er nær óbreytt frá síðasta fundi peningastefnunefndar og gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi. Hvorki verðbólguhorfur né verðbólguvæntingar hafa breyst að neinu marki frá síðasta fundi nefndarinnar.

Horfur eru á minnkandi spennu í þjóðarbúskapnum. Eigi að síður er áfram þörf fyrir peningalegt aðhald til að halda aftur af örum vexti innlendrar eftirspurnar. Dregið hefur úr hættu á ósjálfbærum launahækkunum til skamms tíma litið en undirliggjandi spenna á vinnumarkaði er enn til staðar,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×