Innlent

Þriðja ofbeldishótunin á undanförnum vikum

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Helgi Gunnlaugsson er sérfræðingur í afbrotafræðum.
Helgi Gunnlaugsson er sérfræðingur í afbrotafræðum. VÍSIR/VILHELM
Nokkur tilvik ofbeldishótana grunnskólabarna hafa komið upp á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum vikum. Í síðustu viku tók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu meinta skotárásarhótun barns í Salaskóla í Kópavogi til rannsóknar og mun það vera þriðja ofbeldishótun gagnvart nemendum grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu á nokkrum vikum en samkvæmt öruggum heimildum Fréttablaðsins munu tilvikin vera allnokkur á undanförnum tveimur mánuðum.

Lögreglan hefur ekki viljað tjá sig um þessi tilvik og heimildir Fréttablaðsins herma að ótti við hermiáhrif ráði því að ekki hafi verið tilkynnt um tilvikin opinberlega utan þessa eina tilviks sem tilkynnt var um í síðustu viku. Heimildir blaðsins herma að umræddar hótanir í hafi verið settar fram á samfélagsmiðlum en séu misalvarlegar.

Í þeirri tilkynningu segir að rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við foreldra viðkomandi barns, barnaverndaryfirvöld og skólastjórnendur viðkomandi skóla. Málið sé í farvegi hjá barnaverndaryfirvöldum.

„Það er full ástæða til að taka svona hótanir alvarlega,“ segir Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði. Hann segir hermiáhrifin þekkt fyrirbrigði sem dregið hafi verið fram í rannsóknum erlendis. Börn séu viðkvæmur hópur og áhrifagjarnari en aðrir. Þá geri greitt aðgengi að samfélagsmiðlum einnig að verkum að mjög auðvelt sé að varpa alvarlegum hótunum fram.

Helgi segir að þótt ekki sé endilega gott að þagga umræðu um mál af þessum toga niður sé mikilvægt að fara varlega í opinberri umræðu um þessi mál bæði vegna hermiáhrifanna og til að forðast uppnám meðal nemenda, foreldra og starfsfólks skóla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×