Innlent

Löggæslumyndavélar settar upp í Vestmannaeyjum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Lögregla telur að öryggi íbúa og gesta verði enn betra með myndavélunum.
Lögregla telur að öryggi íbúa og gesta verði enn betra með myndavélunum. vísir/pjetur
Lögreglan hefur síðan í lok ársins 2016 unnið að því í samstarfi við Vestmannaeyjabæ og Neyðarlínuna að komið verði upp löggæslumyndavélum í Eyjum. Lögreglan í Vestmannaeyjum tilkynnti í dag að Vestmannaeyjabær hefur nú fest kaup á myndavélabúnaði í þessu skyni sem verður settur upp á næstu vikum.

Myndavélarnar verða staðsettar í miðbæ Vestmannaeyja og á Básaskersbryggju þar sem Herjólfur leggur að. Rafverktakinn Geisli mun sjá um uppsetningu á vélunum í samstarfi við lögreglu. Um löggæslumyndavélar er að ræða og verður allt myndefni vistað af lögreglu og einungis notað vegna lögreglumála.

Að mati lögreglunnar verður öryggi íbúa Vestmannaeyja og gesta þeirra enn betra með löggæslumyndavélum bæði með tilliti til forvarna og uppljóstrun brota.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×