Ragnar með fjögur mörk í tapi Hüttenberg Einar Sigurvinsson skrifar 17. maí 2018 18:45 Ragnar Jóhannsson fór frá Selfoss til FH og þaðan til Þýskalands. Vísir/Vilhelm
Íslenski landsliðsmaðurinn, Ragnar Jóhannsson, skoraði fjögur mörk þegar lið hans Hüttenberg tapaði fyrir Magdeburg, 31-37, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Auk þess að skora fjögur mörk gaf Ragnar tvær stoðsendingar fyrir Hüttenberg en sigur Magdeburg var aldrei í hættu. Magdeburg var átta mörkum yfir í hálfleik, 11-19. Magdeburg situr í 4. sæti deildarinnar en Hüttenberg er í 18. og neðsta sætinu, einu stigi frá öruggu sæti. Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar þegar Füchse Berlin sigraði Hannover með einu marki, 25-24, eftir spennandi lokamínútur. Skömmu fyrir leikslok var Füchse Berlin sex mörkum yfir, 24-18. Hannover gerðu sér þá lítið fyrir og skoruðu næstu sex mörk og jöfnuðu leikinn, 24-24. Fabian Wiede reyndist þá hetja Berlínarliðsins þegar hann skoraði tryggði sigurinn undir lok leiksins. Füchse Berlin er í 3. sæti deildarinnar með 49 stig, einu stigi frá Rhein Neckar Löwen sem á einn leik til góða í efsta sætinu. Hannover situr í 6. sæti deildarinnar. Lübbecke hafði betur gegn Gummersbach, 22-21. Bæði liðin eru við fallsæti deildarinnar. Sigurinn var mikilvægur fyrir Lübbecke sem fer með honum í 15. sæti deildarinnar, einu stigi frá fallsæti. Gummersbach er með jafn mörg stig í 16. sætinu. Melsungen sigraði Ludwigshafen með fjórum mörkum, 31-27. Staðan í hálfleik var 16-13 fyrir Melsungen. Melsungen fer með sigrinum í 7. sæti deildarinnar með 37 stig en Ludwigshafen er í 17. sætinu með 13 stig.Úrslit kvöldsins: Hüttenberg - Magdeburg 31-37 Füchse Berlin - Hannover 25-24 Gummersbach - Lübbecke 21-22 Ludwigshafen - Melsungen 27-31
Handbolti Mest lesið „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Handbolti Guardiola: Palmer bað um að fá að fara í tvö ár Enski boltinn Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn Í beinni: HK - FH | HK-ingar í sárum Íslenski boltinn Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Íslenski boltinn Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn Fyrrverandi hirti fernu-boltann Enski boltinn „Voru greinilega ósáttir við þessa hlaupandi konu“ Sport „Þá prófaði ég það í fyrsta skipti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sveinn Andri samdi við Stjörnuna Ísland í erfiðum riðli á EM Jóhanna Margrét skiptir um lið innan Svíþjóðar Fimmtán dagar á milli leikja í sama einvígi í Olís deild karla Sebastian tekur við kvennaliði Víkings Tap hjá Íslendingaliðinu í fyrsta leik 8-liða úrslita Norska stórliðið örugglega í undanúrslit HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga „Mættum klárir og ætluðum að svara fyrir laugardaginn“ Alfreð og Dagur saman í riðli á Ólympíuleikunum Spenntur fyrir að halda HM með Íslendingum HM í handbolta 2031 fer fram á Íslandi Magnaður Bjarki Már þegar Veszprém svo gott sem tryggði sér titilinn ÍBV sendi ÍR í sumarfrí Stefán Arnars: Fram er með fjóra og við einn Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 21-25 | Stjörnukonur sendar í sumarfrí Stefán Rafn leggur skóna á hilluna Uppgjörið, viðtöl og myndir: Haukar – ÍBV 31-37 | Eyjamenn sendu Hauka í sumarfrí KA komið í sumarfrí en FH heldur áfram Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga