Lífið

Allt að verða klárt fyrir konunglega brúðkaupið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Meghan Markle og Harry Bretaprins ganga í það heilaga á morgun.
Meghan Markle og Harry Bretaprins ganga í það heilaga á morgun. vísir/ap
Undirbúningur fyrir brúðkaup Harry prins og bandarísku leikkonunnar Meghan Markle er á lokametrunum enda ekki seinna vænna þar sem stóri dagurinn er á morgun.

Móðir Meghan Markle, Doria Ragland, er komin til Bretlands og mun hitta ömmu Harry, Elísabetu II Englandsdrottningu, í Windsor-kastala síðar í dag. Meghan og Harry munu vera með móður hennar þegar hún hittir drottninguna, en Doria hefur nú þegar hitt einhverja úr konungsfjölskyldunni, þar á meðal Karl Bretaprins, föður Harry, og bróður Harry, Vilhjálm Bretaprins.

Karl Bretaprins mun fylgja Meghan upp að altarinu en konungsfjölskyldan tilkynnti þetta nú upp úr klukkan 9. Faðir Meghan, Thomas Markle, mun nefnilega ekki mæta í brúðkaupið af heilsufarsástæðum.

Yfirlýsingin sem Meghan sendi frá sér vegna föður síns.vísir/ap

Sagðist vonast til að faðir hennar fengi næði til að huga að heilsunni



Meghan sendi frá sér yfirlýsingu vegna föður síns í gær þar sem hún staðfesti að hann muni ekki koma í brúðkaupið, en það var bandaríski slúðurmiðillinn TMZ sem greindi fyrst frá því að Thomas Markle myndi ekki mæta. Hann gekkst undir hjartaaðgerð á miðvikudagsmorgun og þarf töluverðan tíma til þess að ná fullum bata.

Í  yfirlýsingu sinni í gær sagði Meghan að henni hefði alltaf þótt vænt um föður sinn og að hún vonaðist að hann fengi næði til að huga að heilsunni.

Fjölmiðlar, og þá ekki síst gula pressan í Bretlandi, hafa farið mikinn undanfarnar vikur í fréttaflutningi sínum af föður Meghan. Þannig hefur gulu pressunni þótt hann heldur luralegur og ýjað að því að hann sé ekki þess verðugur að vera tengdapabbi Bretaprinsins.

Ljósmyndahneyksli varpaði síðan skugga á brúðkaupið í vikunni þegar upp komst að Thomas Markle hafði reynt að bæta ímynd sína í bresku blöðunum. Ráðinn var paparazzi-ljósmyndari til að taka myndir af pabbanum, sem látnar voru líta út eins og þær væru teknar í laumi, og þeim dreift til fjölmiðla sem greiddu háar upphæðir fyrir.

Á myndunum sást Thomas sýsla ýmislegt í aðdraganda brúðkaupsins; máta jakkaföt, lesa greinar um brúðkaupið og koma sér í form fyrir stóra daginn. Mail on Sunday greindi síðan frá því um helgina að myndirnar væru uppstilltar og í raun algjört plat. Olli það miklu fjaðrafoki.

Þau Georg og Karlotta verða virkir þátttakendur í brúðkaupi stóra frænda.vísir/ap

Vildi ekki gera upp á milli nánustu vinkvenna sinna



Brúðkaupið verður í kapellu heilags Georgs í Windsor-kastala og  hefst athöfnin klukkan 11 á morgun að íslenskum tíma, eða klukkan 12 að staðartíma. Kapellan var byggð árið 1475 og hafa ýmsar konunglegar athafnir farið þar fram í gegnum aldirnar, þar á meðal skírn Harry árið 1984 og blessun borgaralegs hjónabands Karls og Camillu Parker-Bowles árið 2005.

Sex brúðarmeyjar og fjórir brúðarsveinar taka þátt í athöfninni. Öll eru þau yngri en átta ára og eru börn Vilhjálms og Katrínar, hertogaynju af Cambridge, hinn fimm ára gamli Georg og hin þriggja ára gamla Karlotta á meðal þeirra.

Engin aðalbrúðarmær (e. made of honour) verður hins vegar með þar sem Meghan vildi ekki þurfa að velja á milli sinna nánustu vinkvenna. Svaramaður Harry verður bróðir hans Vilhjálmur.

600 gestir verða í kapellunni þegar Meghan og Harry verða gefin saman en fyrir utan Windsor-kastala verða alls 2.640 gestir, allt almennir borgarar, sem munu fylgjast þegar parið mætir í kapelluna og fer síðan yfir í veisluna í brúðarvagninum.

Claire Ptak, eigandi Violet Bakery, vinnur hér að brúðartertan.vísir/ap

Sítrónur og ylliblóm í brúðartertunni



Ferðin í vagninum verður í gegnum miðbæ Windsor og er áætlað að hún hefjist klukkan 13 að staðartíma, eða klukkan 12 að íslenskum tíma. Að henni lokinni hefst svo brúðkaupsveisla í sal heilags Georgs. Gestgjafinn er sjálf drottningin.

Verið er að leggja lokahönd á brúðartertuna sem boðið verður upp á í veislunni en bakarinn Claire Ptak, eigandi Violet Bakery í Austur-London, sér um baksturinn. Henni til aðstoðar eru sex aðrir bakarar sem hafa síðustu fimm daga unnið að kökunni í eldhúsum Buckingham-hallar.

Kakan er í nokkrum lögum og eru sítrónur og ylliblóm í aðalhlutverki. Ptak hefur sagt að kakan verði borin fram á óhefðbundinn hátt en hún hefur ekki gert varaköku ef þessi misheppnast.

„Þetta er kaka. Það getur ekki það mikið farið úrskeiðis,“ segir Ptak.

Um kvöldið er svo önnur veisla fyrir nánustu ættingja og vini en hún fer fram í húsinu Frogmore. Má búast við að þessi veisla verði aðalbrúðkaupspartýið, ef svo má að orði komast.

Gríðarleg öryggisgæsla er við Windsor-kastala eins og gefur að skilja.vísir/ap

Eyðir síðustu nóttinni með móður sinni



Meghan mun eyða síðustu nótt sinni fyrir brúðkaupið með móður sinni á lúxushótelinu Cliveden House Hotel í Buchinghamskíri sem er um 14 kílómetra norður frá Windsor-kastala. Harry eyðir síðustu nóttinni í Dorchester Collection‘s Coworth Park í Ascot sem er í 24 kílómetra fjarlægð frá hótelinu þar sem Meghan gistir.

Herlegheitin verða að sjálfsögðu í beinni útsendingu svo íslenskir aðdáendur konungsfjölskyldunnar ættu ekki að missa af neinu ef þeir verða fyrir framan skjáinn á morgun. Þá verður bein textalýsing á Vísi frá brúðkaupinu þar sem greint verður frá öllu því helsta sem fram fer.

Byggt á fréttum BBC og Guardian.



Fréttin var uppfærð með upplýsingum um hver mun fylgja Meghan Markle upp að altarinu.



Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×