Innlent

Dræm þátttaka í kosningu um nýtt nafn sameinaðs sveitarfélags Sandgerðis og Garðs

Birgir Olgeirsson skrifar
500 kusu, 176 völdu Heiðarbyggð, 100 völdu Suðurbyggð en 224 skiluðu auðu.
500 kusu, 176 völdu Heiðarbyggð, 100 völdu Suðurbyggð en 224 skiluðu auðu.
Íbúar í Sandgerði og Garði völdu nafnið Heiðarbyggð á sameinað sveitarfélag þeirra. Íbúarnir kusu á milli Heiðarbyggðar og Suðurbyggðar en niðurstaða kosningarinnar verður ráðgefandi fyrir nýja sveitarstjórn sveitarfélagsins sem verður kjörin í sveitarstjórnarkosningum síðar í mánuðinum.

Sveitarfélögin voru sameinuð eftir að íbúar samþykktu sameininguna í kosningu 11. nóvember síðastliðinn. 

Sveitarfélagið skipaði nafnanefnd til að velja nýtt nafn á sveitarfélagið. Var óskað eftir tillögum að nýju nafni sem voru bornar undir Örnefnanefnd. Þau nöfn sem hlutu jákvæða umsögn frá Örnefnanefnd fóru í kosningu á meðal íbúa en niðurstaðan var kynnt í golfskála Golfklúbbs Sandgerðis, sem er á milli sveitarfélaganna tveggja, á hádegi í dag.

Valið stóð á milli Heiðarbyggðar og Suðurbyggðar. 

2.692 voru á kjörskrá en 500 af þeim greiddu atkvæði. 

Heiðarbyggð fékk 176 atkvæði en Suðurbyggð 100 atkvæði. 224 skiluðu auðu. 

Sýnt var beint frá því þegar niðurstaðan var lesin upp í golfskálanum á Facebook-síðu Víkufrétta. Þar var komið inn á að kosningaþátttaka hefði verið dræm en rætt var um að mögulega væru íbúarnir ekki ánægðir með þessa tvo valkosti. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×