Erlent

Harry og Meghan gengin í hjónaband

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kossinn sem allir höfðu beðið eftir.
Kossinn sem allir höfðu beðið eftir. Vísir/Getty
Harry Bretaprins og bandaríska leikkonan Meghan Markle gengu í hjónaband í dag.

Athöfnin hófst klukkan 11 að íslenskum tíma í dag og voru hin nýbökuðu hjón gefin saman nokkrum mínútum síðar. Mikil fagnaðarlæti mátti heyra inn í kirkjuna þegar hjónin lofuðust hvort öðru en þau innsigluðu svo hjónabandið með hringum um klukkan 11:40.

Sjá einnig: Bein útsending: Harry Bretaprins og Meghan Markle ganga í hjónaband

Harry og Meghan eru þar með orðin hertogahjónin af Sussex en tillkynnt var um opinbera titla þeirra í morgun.



Meghan klæddist glæsilegum brúðarkjól, mikilfenglegu slöri og kórónu við athöfnina í dag. Harry fór að fordæmi bróður síns, Vilhjálms, og klæddist herbúning. Þá sáust glitra tár á hvarmi brúðgumans, og eflaust fjölmargra annarra, við athöfnina.

Tveir drengir hjálpuðu Meghan með slörið upp kirkjutröppurnar í morgun.Vísir/Getty
Breska konungsfjölskyldan lét sig að vonum ekki vanta í dag en Elísabet Bretadrottning og Filippus prins voru bæði viðstödd brúðkaupið. Þá leiddi Karl Bretaprins Meghan síðasta spölinn upp að altarinu en faðir hennar, Thomas Markle, mætti ekki í brúðkaupið af heilsufarsástæðum. Georg prins og Karlotta, bróðurbörn brúðgumans, voru á meðal tíu barna sem fylgdu brúðinni niður altarið.

Faðir Meghan, Thomas Markle, komst ekki í brúðkaupið. Karl Bretaprins, faðir Harrys, leiddi því tilvonandi tengdadóttur sína upp að altarinu.Vísir/Getty
Erkibiskup Biskupakirkjunnar í Bandaríkjunum, Michael Curry, ávarpaði brúðhjónin við athöfnina. Ræða hans einkenndist af tali um ást og hann vitnaði mikið í séra Martin Luther King. Þar var líklega um að ræða fyrsta skipti sem talað er um þræla í konunglegu brúðkaupi í Bretlandi. Ljóst er að það skipti miklu máli fyrir brúðhjónin að menning þeirra beggja fengi að njóta sín.

Erkibiskupinn Michael Curry.Vísir/AFP
Fræga fólkið flykktist í brúðkaup Harry og Meghan en á meðal viðstaddra voru tennisstjarnan Serena Williams og eiginmaður hennar Alex Ohanian, stofnandi Reddit, spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey og starfsbróðir hennar James Corden, tónlistarmaðurinn Sir Elton John og leikarinn Idris Elba. Samtals voru 600 gestir viðstaddir athöfnina auk 2640 almennra borgara.

Serena Williams og Alex Ohanian er þau mættu í brúðkaupið í morgun.Vísir/AFP
Að athöfninni lokinni fara hjónin í hestvagni í gegnum miðbæ Windsor. Að því búnu hefst brúðkaupsveisla í sal heilags Georgs en gestgjafinn er sjálf drottningin.

Í kvöld er svo önnur veisla fyrir nánustu ættingja og vini brúðhjónanna en hún fer fram í Frogmore húsinu. Sú veisla verður að öllum líkindum töluvert óformlegri en sú sem drottningin heldur til heiðurs þeim.

Hér að neðan má sjá þegar hertogahjónin af Sussex gengu út úr kirkjunni og kysstust í fyrsta sinn sem hjón.

Katrín, hertogaynja af Cambridge, leiðir hér barnahópinn upp kirkjutröppurnar.Vísir/AFP
Hringar brúðhjónanna, sem eru úr smiðju gullsmiðanna Cleave and Company, eru úr velsku gulli.Vísir/Getty
Vísir fylgdist grannt með stöðu mála í Brúðkaupsvaktinni í dag sem sjá má í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira
×