Innlent

Umferðarslys á Suðurlandsvegi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi á Suðurlandsvegi í dag.
Frá vettvangi á Suðurlandsvegi í dag. Vísir/Margrét Helga
Árekstur varð á Suðurlandsvegi við Krókháls á öðrum tímanum í dag en tveir bílar rákust saman. Einn var fluttur á sjúkrahús.

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slysið klukkan 13:16 í dag, að sögn varðstjóra. Hann sagði tvo sjúkrabíla hafa verið senda á vettvang auk dælubíls. Þá var einn fluttur á sjúkrahús en ekki fengust upplýsingar um líðan hans.

Nokkrar tafir urðu á umferð vegna árekstursins, að sögn blaðamanns Vísis sem átti leið hjá vettvangi, en viðbragðsaðilar þveruðu veginn við slysstað. Þó hafði verið opnað fyrir alla umferð um Suðurlandsveg nú um klukkan 14.

Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang auk lögreglubíla.Vísir/Margrét Helga



Fleiri fréttir

Sjá meira


×