Innlent

Segir launahækkanir til bæjarstjóra Kópavogs óhóf

Þórdís Valsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir var gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag.
Katrín Jakobsdóttir var gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag. Stöð 2
„Hann er með hærri laun en ég,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um launahækkun Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogsbæjar, í Víglínunni í dag. Launahækkun bæjarstjórans hefur verið gagnrýnd undanfarna daga en laun hans hækkuðu um 32,7 prósent milli áranna 2016 og 2017. Laun Ármanns eru nú hærri en mánaðarlaun borgarstjóra New York.

Sjá meira:Mánaðarlaun bæjarstjórans hækkuðu um 612 þúsund

Þetta er óhóf og þetta er líka ábyrgðarhluti hjá stjórnendum hjá hinu opinbera af því að ábyrgðin á stöðugleikanum verður ekki lögð á herðar lægst launaða fólksins,“ segir Katrín Jakobsdóttir. 

Katrín segir að fulltrúi Vinstri-grænna í Kópavogi hafi gagnrýnt þessa launaþróun Ármanns og að nú þurfi að taka opinskáa umræðu um það hvar ábyrgðin á því að halda sátt á vinnumarkaði liggi. 

„Hún getur ekki legið hjá lægst launaða fólkinu, þar þurfa stjórnendur að taka ákveðna ábyrgð á sig. Við létum vinna hér samantekt um kjararáð í kjölfar þeirrar umrræðu sem varð um úrskurði kjararáðs. Niðurstaðan úr henni var alveg skýr. Það kemur fram frumvarp í haust þar sem lagt verður til að leggja niður kjararáð í núverandi mynd og fastbinda laun kjörinna fulltrúa og dómara við þróun á opinberum markaði, þannig að við séum ekki að horfa upp á þessa úrskurði sem koma hér með reglulegu millibili eins og verið hefur.“

Aðspurð hvort henni þyki eðlilegt að Ármann Kr. íhugi stöðu sína segir Katrín að gera þurfi þá kröfu að kjörnir fulltrúar svari skýrt um hvaða stefnu þeir vilji fylgja í sínum starfskjaramálum, bæði hvað varðar þá sem hafa lægst laun hjá sveitarfélögum og einnig hvað varðar kjör æðstu stjórnenda.

„Þetta er eitthvað sem við erum búin að taka þegar á með þessum ákvörðunum um kjararáð og við þurfum síðan sérstaklega að fara yfir stjórnendur opinberra fyrirtækja og ég held að það sama eigi við um sveitarfélögin,“ segir Katrín og bætir við að í fyrra hafi verið send út tilmæli um að gætt yrði hófs í launahækkunum.

„Síðan þá höfum við séð töluverðar launahækkanir. Ég veit að fjármálaráðherra er búinn að óska eftir upplýsingum um þessar launahækkanir til þess að bera þær saman við almennar launaþróun þannig að við höfum það upp á borðum,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Þáttinn í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan.

 


Tengdar fréttir

Mánaðarlaun bæjarstjórans hækkuðu um 612 þúsund

Laun kjörinna fulltrúa Kópavogsbæjar hækkuðu umtalsvert á milli áranna 2016 og 2017 þrátt fyrir að þeir hafi ekki þegið hækkun kjararáðs. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri fékk tæpar 2,5 milljónir í laun á mánuði í fyrra og laun bæjarstjórnar- og bæjarráðsfulltrúa hækkuðu um 30 prósent á milli ára.

Laun Ármanns fram úr hófi

„Það liggur í augum uppi að kjör bæjarstjóra Kópavogs hafa keyrt fram úr öllu hófi og að á nýju kjörtímabili verði þessi laun tekin til endurskoðunar með lækkun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×