Glæsimark Guðmundar tryggði Norrköping sigurinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðmundur Þórarinsson skoraði glæsimark í dag. Hann gaf út sumarsmellinn Leigubílstjóri á dögunum.
Guðmundur Þórarinsson skoraði glæsimark í dag. Hann gaf út sumarsmellinn Leigubílstjóri á dögunum. vísir/getty
Selfyssingurinn Guðmundur Þórarinsson tryggði Norrköping sigur á Dalkurd í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta með glæsimarki í seinni hálfleik.

Gestirnir í Dalkurd komust yfir strax á áttundu mínútu með marki frá Ferhad Ayaz áður en Kalle Holmberg jafnaði eftir vítaspyrnu eftir hálftíma leik og liðin fóru jöfn inn í hálfleikinn.

Jón Guðni Fjóluson var tekinn af velli í hálfleik en hann, Guðmundur og Arnór Sigurðsson voru allir í byrjunarliði Norrköping í dag. David Moberg og Kebba Ceesay skoruðu sitt hvort markið snemma í seinni hálfleik áður en Guðmundur fékk boltann utarlega í vítateignum og hamraði hann viðstöðulaust í hliðarnetið á fjærstönginni, óverjandi negla.

Simon Skrabb innsyglaði svo sigur Norrköping þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka.

Með sigrinum jafnar Norrköping AIK að stigum í öðru sæti deildarinnar en bæði lið eru með 19 stig, sex stigum á eftir Hammarby á toppnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira