Lífið

Glæsilegt stjörnuskoðunarhús í einkagarði í Hornafirði

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Eitt glæsilegasta stjörnuskoðunarhús landsins er staðsett í Hornafirði en inni í húsinu er stærsti stjörnusjónauki í einkaeigu á landinu. Það er Snævarr Guðmundsson, stjörnuáhugamaður sem byggði húsið og flutti sjónaukann til landsins. 

Stjörnuskoðunarhúsið er staðsett í garðinum við heimili Snævars í Hornafirði, glæsilegt hús sem hann byggði með hvolfþaki sem hann getur fært til eftir því hvert hann ætlar að beina stjörnukíkinum út í himinhvolfið. Stjörnusjónaukinn er engin smásmíði og með þeim allra fullkomnustu á landinu í einkaeigu.

„Þessi sjónauki er  með birtusöfnun upp á fjögur þúsund og fimm hundruð fallt mannsaugans ef það segir eitthvað. Ég get skoðað allt fyrir ofan sjóndeildarhring, allan hringinn, allt sem er að eiga sér stað. Það eina sem er þröskuldurinn er veðrið og auðvitað sumarið, en allan veturinn á meðan það er heiðríkja nýti ég þennan sjónauka,“ segir Snævarr.

Hann segist aðallega skoða myrkvastjörnur sem eru afar þétt tvístirni sem sjást í stjörnusjónaukum sem ein stök stjarna.

Stjörnuskoðunarhúsið hýsir stærsta stjörnusjónauka landsins sem er í einkaeigu.Vísir/Magnús Hlynur
En er það eitthvað sérstakt og óvenjulegt sem Snævarr hefur séð í himingeimnum?

„Fjarreikistjörnur, það er ótrúlegt að við getum séð eða numið merki frá fjarlægjum reikistjörnum. Það má ekki gleyma því að við erum fyrsta kynslóðin sem getur það. Allar þær kynslóðir sem gengnar eru á undan ræddu þetta, skyldu vera til reikistjörnur annars staðar en í sólkerfinu okkar en þær gátu aldrei sýnt fram á það. Það er auðvitað stórmerkilegt.“

Snævarr, sem er náttúrulandfræðingur hjá Náttúrustofu Suðausturlands, tekur ljósmyndir af stjörnunum og hefur haldið sérstakar stjörnuljósamyndlistasýningar á Höfn. En af hverju hefur hann svona mikinn áhuga á stjörnuskoðun?

„Ef ég fæ áhuga á einhverju þá tek ég það á fullu vegna þess að ef maður vill ná árangri í einhverju þá verður maður á fókusa á það,“ segir Snævarr Guðmundsson, einn helsti stjörnuskoðunarmaður landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×