Lífið

Javi sveiflaði Ebbu að hætti nautabana

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Paso doble er mjög alvarlegur dans.
Paso doble er mjög alvarlegur dans. Vísir
Ebba Guðný og Javi tókust á í dansinum Paso doble síðasta sunnudagskvöld í Allir geta dansað. Ebba var í eldrauðum síðum kjól en um miðjan dans þá henti hún af sér pilsinu og var hún þá í styttra pilsi undir.

Ebba og Javi tóku sig vel út á sviðinu.Vísir
Javi er þekktur fyrir að fara alla leið með atriðin sem þau Ebba hafa sýnt í vetur og var þetta atriði engin undantekning þar á.

Í einu atriði kom hann fram sem The Mask úr samnefndri bíómynd og í öðru var hann málaður sem látbragðsleikari. Ebba og Javi eru komin í úrslitaþáttinn sem fer fram næstkomandi sunnudagskvöld. 

Atriði þeirra úr síðasta þætti má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Javi sveiflaði Ebbu fram og til baka á dansgólfinu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir og Javier Fernández Valiño fóru mikinn í dansþættinum Allir geta dansað í beinni útsendingu á sunnudagskvöldið síðasta en þau dönsuðu Cha-cha-cha með miklum tilþrifum.

Sjáðu stjörnurnar taka fyrstu sporin

Allir geta dansað fer í sýningu á Stöð 2 þann 11. mars en um er að ræða íslenska útgáfu af þáttunum Dancing with the Stars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×