Tónlist

Nýtt lag með Írafári eftir þrettán ára hlé

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Birgitta Haukdal er söngkona Írafárs. Hún er spennt fyrir afmælistónleikum sveitarinnar í júní og útgáfu nýs lags.
Birgitta Haukdal er söngkona Írafárs. Hún er spennt fyrir afmælistónleikum sveitarinnar í júní og útgáfu nýs lags. Vísir/Anton Brink
Aðdáendur hljómsveitarinnar Írafárs hafa nú ríka ástæðu til að fagna en sveitin frumflutti nýtt lag í dag. Þrettán ár eru síðan Birgitta Haukdal og félagar hennar í Írafári gáfu út nýtt efni.

Lagið, sem ber titilinn Þú vilt mig aftur, var frumflutt hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni í morgun en hlusta má á lagið í heild í spilaranum neðst í fréttinni. Birgitta Haukdal, söngkona Írafárs, og Sigurður Samúelsson, bassaleikari sveitarinnar, mættu auk þess í hljóðver í morgun og ræddu endurkomuna sem hefur verið í bígerð í nokkurn tíma.

Vignir og Birgitta á sínum tíma.vísir/gva
„Þetta var svo geðveikt á Þjóðhátíð og á Fiskideginum á Dalvík að ég sagði við strákana, strákar, verðum við ekki núna? Er þetta ekki tíminn?“ sagði Birgitta um aðdraganda endurkomunnar.

Og tíminn var svo sannarlega runninn upp. Í byrjun apríl tilkynntu Birgitta og Vignir Snær Vigfússon, gítarleikari og annar söngvari Írafárs, um að þau væru að taka upp nýtt lag.

„Við Viggi eyddum dágóðum tíma í að fara yfir demó og hittast, svo hittist hljómsveitin líka, og við ákváðum að taka upp nokkur lög,“ sagði Birgitta og bætti við að það hafi verið afar erfitt að velja eitt lag til útgáfu.

Lagið sem varð loks fyrir valinu heitir Þú vilt mig aftur en um er að ræða fyrsta lagið sem sveitin gefur út í 13 ár.

Írafár heldur upp á 20 ára afmæli í ár en sveitin var stofnuð árið 1998 og starfaði óslitið fram til ársins 2005. Í tilefni þess verða haldnir tvennir afmælistónleikar í Hörpu þann 2. júní næstkomandi, klukkan 19:30 og 22:30.


Tengdar fréttir

Írafár er aðalnúmerið á Þjóðhátíð

Birgitta Haukdal og félagar í Írafári verða á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í sumar. Hljómsveitin fagnar 20 ára afmæli í sumar með stórtónleikum í Hörpu. Nýstirnin Jói Pé og Króli svo og Páll Óskar eru einnig staðfestir í Dalinn. Miðasala hefst í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×