Síðasti Evrópuleikur Wenger með Arsenal endaði með tapi og liðið úr leik

Wenger niðurlútur í kvöld.
Wenger niðurlútur í kvöld. vísir/afp
Atletico Madrid er komið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar eftir 1-0 sigur á Arsenal í síðari leik liðanna í undanúrslitunum.

Fyrri leikurinn endaði með 1-1 jafntefli og það var útlit fyrir spennandi leik í kvöld á Spáni á hinum glænýja Estadio Wanda Metropolitano.

Arsenal varð fyrir áfalli strax á tólftu mínútu er Laurent Koscielny meiddist. Meiðsli hans virkuðu alvarleg og er óttast að hans sé með slitna hásin. Sé það raunin mun hann ekki spila með Frakklandi á HM í sumar.

Fyrsta mark leiksins kom á síðustu mínútu fyrri hálfleiksins er Diego Costa fékk sendingu frá Antoine Griezmann en varnarleikur Arsenal í markinu var nánast barnalegur.

Arsenal reyndi að sækja í síðari hálfleik enda þurfti liðið eitt mark til þess að koma leiknum í framlengingu. Það tókst ekki og Costa skaut því Atletico í úrslitaleikinn. Þar mætir liðið annað hvort Salzburg eða Marseille en framlengingin er í gangi þar.

Þetta var því síðasti leikur Arsene Wenger í Evrópukeppnum með Arsenal en hann hættir í lok tímabilsins. Hann á þrjá leiki eftir með Arsenal en þetta var svanasöngur hans í Evrópukeppnum með liðinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira