Viðskipti erlent

Þúsund hagfræðingar vara Trump við að endurtaka fyrri mistök

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Kreppan mikla er almennt talin hafa hafist 29. október árið 1929.
Kreppan mikla er almennt talin hafa hafist 29. október árið 1929. Vísir/Getty
Rúmlega eitt þúsund hagfræðingar, þar á meðal 14 Nóbelsverðlaunahafar, hafa sett nafn sitt við viðvörun til Bandaríkjaforsetans Donald Trump þar sem einangrunarstefna hans og herskár talsmáti um alþjóðaviðskipti eru gagnrýnd. Óttast hagfræðingarnir að bandarísk stjórnvöld séu í þann mund að endurtaka mistök sín í aðdraganda Kreppunnar miklu, sem lék hagkerfi heimsins grátt á fjórða áratug síðustu aldar.

Viðvörunin var send út í gær en Bandríkjaforseti hefur ýjað að því á síðustu misserum að viðskiptastríð milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins sé í vændum. Trump hefur þegar hækkað tolla á innflutt stál og ál en ákvað að fresta gildistökunni fyrir vörur frá Evrópusambandinu, Ástralíu og nokkrum öðrum ríkjum. Þá hefur Trump einnig hótað því að draga Bandaríkin út úr fríverslunarsamningi Norður-Ameríku, Nafta, sem hann segir vera að grafa undan bandarískri framleiðslu.

Í viðvöruninni, sem rakin er á vef Guardian, minna hagfræðingarnir á hvernig þáverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum hlustuðu ekki á viðvaranir hagfræðinga í aðdraganda Kreppunnar miklu. Þeir hafi hvatt Bandaríkjastjórn til að losa sig við einangrunarstefnuna og reyna að liðka fyrir alþjóðlegum viðskiptum.

Sjá einnig: Boltinn á vallarhelmingi Bandaríkjanna

„Í dag standa Bandaríkjamenn frammi fyrir nýjum verndartilraunum, þeirra á meðal hótunum um að hætta í alþjóðlegum viðskiptasamningum, óúthugsuðum óskum um frekari tolla vegna viðskiptahalla og innleiðingu tolla á innflutta þvottavélar, sólarrafhlöðuíhluti og jafnvel stál og ál sem notað er í bandarískum verksmiðjum,“ skrifa hagfræðingarnir.

Bandaríska þingið hafi ekki hlustað á viðvarnir hagfræðinga þá og hafi bandaríska þjóðin fengið að súpa seyðið af því. „Undirritaðir hagfræðingar hvetja þig [Donald Trump] til að gera ekki sömu mistök. Margt hefur breyst frá árinu 1930 - til að mynda er alþjóðleg verslun orðin miklu mikilvægari efnahag okkar en hún var þá - en grundvallarhagfræðilögmálin eru hins vegar enn óbreytt.“

Meðal þeirra sem skrifa undir bréfið eru Nóbelsverðlaunahafarnir Richard Thaler, Oliver Hart, Roger Myerson og James Heckman ásamt Jason Furman, sem var aðalefnhagsráðgjafi bandaríkjaforsetans Baracks Obama og James Miller, ráðgjafi Ronalds Reagan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×