Íslenski boltinn

Fylgist með Stefáni Árna í Ástríðunni í allt sumar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Stefán Árni Pálsson mun fylgjast vel með stuðningsmönnum í kringum valda leiki í Pepsideild karla í allt sumar. Hann ræddi við stuðningsmenn Vals og KR fyrir leik liðanna í fyrstu umferð nýs tímabils og má sjá afraksturinn í nýjum þætti sem birtur er á Facebook-síðu Pepsimarkanna, Ástríðunni.

Það var mikil stemning á Origo-vellinum fyrir opnunarleik tímabilsins en svo fór að Valur vann 2-1 sigur á KR eftir dramatískar lokamínútur þar sem hvort lið skoraði mark í uppbótartíma.

Innslag frá Stefáni Árna mátti sjá í Pepsimörkunum á sunnudagskvöld en lengri útgáfa er nú komin á Facebook-síðu þáttarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×