Innlent

Upp­bygging at­vinnu­lífs á Suður­nesjum ráðist að miklu leyti af fjölda al­þjóð­legra sam­göngu­tenginga

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sviðsmyndin Flugborgin er ein af þeim sem dregin er upp í skýrslunni en þar er Keflavíkurflugvöllur í stóru hlutverki.
Sviðsmyndin Flugborgin er ein af þeim sem dregin er upp í skýrslunni en þar er Keflavíkurflugvöllur í stóru hlutverki. vísir/ernir
Framtíðaruppbygging atvinnulífs mun að líklega ráðast að miklu leyti af fjölda alþjóðlegra samgöngutenginga, ekki síst beinna flugtenginga.

Þetta er niðurstaða skýrslunnar Suðurnes 2014 – Sviðsmyndir um mögulega þróun atvinnulífs á Suðurnesjum sem KPMG vann fyrir Isavia, Kadeco – þróunarfélag Keflavíkurflugvallar og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Skýrslan var kynnt fyrr í dag í Hljómahöll.

Í henni kemur jafnframt fram einnig muni skipta miklu máli fyrir framtíðaruppbyggingu atvinnulífs hvort áhersla verði lögð á virðisaukandi framleiðslu og þjónustu eða á magn og fjölda.

Í skýrslunni eru dregnar upp fjórar sviðsmyndir sem lýsa mögulegri stöðu í atvinnumálum Suðurnesja árið 2040.

Iðnaðarsvæðið er ein sviðsmynd en þar hefur dregið úr mikilvægi ferðaþjónustu og áhersla hefur verið lögð á hvers konar iðnað, stóran og smáan.

Í sviðsmyndinni Flutningamiðstöðin er lögð áhersla á magnflutninga á vörum og farþegum. Farþegum fjölgar áfram og alþjóðleg vöruflutningamiðstöð hefur risið á svæðinu.

Rannsóknamiðstöðin er síðan sviðsmynd þar sem lögð er áhersla á nýsköpun og þróun. Þeir ferðamenn sem hingað koma eru helst erlendir skóla-og rannsóknahópar sem heimsækja sprotafyrirtæki og kynna sér stórbrotna náttúru landsins.

Sviðsmyndin Flugborgin segir svo frá gríðarlegum vexti í flugumferð um Keflavíkurflugvöll með tilheyrandi aukningu í ferðaþjónustu. Flugvallatengd starfsemi í anda Aerotropolis hefur byggst upp í kringum flugvöllinn með sérhæfðum klösum á sviði þjónustu og afþreyingar.

Íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 60 prósent á árunum 2000 til 2018 en á sama tíma fjölgaði landsmönnum um 25 prósent. Þá eru um 22 prósent íbúa Reykjanesbæjar erlendir ríkisborgarar og mun sú tala hækka á næstu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×