Fótbolti

37 dagar í HM: Var eitrað fyrir Ronaldo á HM 1998?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo eftir leikinn með skóna og silfurpeninginn um hálsinn.
Ronaldo eftir leikinn með skóna og silfurpeninginn um hálsinn. vísir/getty
Samsæriskenningarnar í kringum úrslitaleik Frakklands og Brasilíu á HM 1998 eru lyginni líkastar. Málið var svo stórt í Brasilíu að þingið stóð fyrir sinni eigin rannsókn á úrslitaleiknum.

Brasilíumenn höfðu spilað frábærlega á mótinu og voru sigurstranglegir. Þessi síðasti leikdagur HM var þó ólíkur öllum þeim sem Brassar hafa áður upplifað. Það skilaði sér í því að liðið hitaði ekki á vellinum, gat ekkert í leiknum og tapaði 3-0 fyrir frábærum Frökkum.

Hristist allur til og var froðufellandi

Stjarna brasilíska landsliðsins var hinn 21 árs gamli Ronaldo. Liðið fór saman í hádegismat á frönskum veitingastað en eftir að liðið kom aftur upp á hótel fór af stað ótrúleg atburðarrás.

Leikmenn voru í hvíld inn á herbergjum sínum er eitthvað alvarlegt kemur fyrir Ronaldo. Hann liggur í rúmi sínu og byrjar að hristast allur til og lemja sjálfan sig. Framherjinn er einnig froðufellandi og herbergisfélagi hans, Roberto Carlos, fær eðlilega áfall. Rýkur fram á gang, lemur á allar hurðir og biður um aðstoð. Cesar Sampaio veitti fyrstu aðstoð og sá meðal annars til þess að framherjinn gleypti ekki tungu sína.

Skömmu síðar sofnaði Ronaldo. Eftir stóðu félagar hans í áfalli. Í fyrstu var tekin sú ákvörðun að segja Ronaldo ekkert hvað hefði gerst er hann vaknaði. Sú ákvörðun fór illa í miðjumanninn Leonardo sem fékk leyfi til þess að greina vini sínum frá uppákomunni. Leonardo fór því með Ronaldo í göngutúr og sagði honum allt af létta.

Á þessum tímapunkti er hermt að landsliðsþjálfarinn Mario Zagallo hafi ákveðið að Ronaldo myndi ekki spila úrslitaleikinn. Læknar brasilíska landsliðsins fóru með hann upp á spítala í rannsóknir á meðan niðurlútir félagar hans fóru á völlinn.

Náði á völlinn rétt fyrir leik

Ronaldo nær á Stade de France 40 mínútum fyrir leik með niðurstöður rannsóknarinnar. Það var nákvæmlega ekkert að honum. Rannsóknirnir sýndu ekkert óeðlilegt. Hann krafðist þess að fá að spila leikinn. Zagallo hlýddi og leikskýrslunni var breytt skömmu fyrir leik.

Þetta mál hefur alla tíð verið hið dularfyllsta en Ronaldo staðfesti þessa atburðarrás í viðtali í síðasta mánuði.

Í Brasilíu var allt brjálað út af þessu máli enda fátt um útskýringar. Í fyrstu fór lögfræðingur í mál því hann vildi fá svör við því hvað hefði gerst þennan örlagaríka dag. Í kjölfarið var hafin rannsókn á tveimur læknum brasilíska liðsins en þeim var vikið frá störfum á endanum. Annar læknanna sagði að pressan á að gefa Ronaldo grænt ljós hefði verið rosaleg.

„Ef hann hefði ekki spilað og leikurinn samt tapast 3-0 þá hefði ég þurft að flytja á Norðurpólinn,“ sagði læknirinn.

Á endanum tók brasilíska þingið málið fyrir og voru allir lykilmenn kallaðir í viðtal. Þá var sterkasta samsæriskenningin sú að Nike hefði þvingað brasilíska sambandið til að spila Ronaldo. Á þessum tíma voru peningar að breyta öllu í boltanum. Fólk var til í að trúa því. Ekkert sannaðist þó á Nike.

Ekkert benti til eitrunar

Samsæriskenningarnar í gegnum árin hafa verið margar og ein þeirra er sú að eitrað hafi verið fyrir Ronaldo í hádegismatnum fyrir hlé. Þetta var úrslitaleikur í Frakklandi og heimamenn hafi viljað losna við besta leikmann Frakka. Aldrei fundust nein sönnungargögn sem bentu til eitrunar.

Einnig var slúðrað um að Ronaldo væri með sjúkdóm sem hann hefði leynt fyrir heimsbyggðinni. Margir segja að líklegasta skýringin fyrir þessum óvæntu veikindum sé sú að hann hafi fengið sprautu í hnéð nokkru fyrir kastið og þetta hafi verið viðbrögð við sprautugjöfinni.

Zagallo landsliðsþjálfari segir að það hafi ekki verið honum að kenna að Brasilía tapaði leiknum. Það hefði engu breytt hvort Ronaldo hefði spilað eður ei. Allir leikmenn liðsins voru í það miklu áfalli eftir atburði dagsins að hausinn á þeim hefði verið á röngum stað. Skal engan undra. Þeir óttuðust að hann gæti látið lífið í leiknum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×