Tónlist

Sláandi myndband Childish Gambino vekur athygli á byssuofbeldi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tónlistarmyndbandið við lagið This is America vekur athygli á fjölda alvarlegra málefna og þarf að horfa á það oftar en einu sinni.
Tónlistarmyndbandið við lagið This is America vekur athygli á fjölda alvarlegra málefna og þarf að horfa á það oftar en einu sinni. Youtube/Donald Glover
Nýtt myndband frá Childish Gambino, sem er annað sjálf leikarans, handritshöfundarins, leikstjórans, framleiðandans og tónlistarmannsins Donald Glover, hefur vakið heimsathygli síðustu daga. Þar er meðal annars vakin athygli á faraldri byssuofbeldis í Bandaríkjunum, lögregluofbeldi og fleiri samfélagslegum vandamálum.

Glover var í þættinum Saturday Night Live um helgina og frumflutti hann svo einnig tvö ný lög sem Gambino. Á sama tíma fór á netið myndbandið við annað lagið, This is Amercia, og það er langt síðan tónlistarmyndband hefur fengið svo mikla umfjöllun. 

Hér fyrir neðan verður aðeins farið yfir brot af því sem nú þegar hefur skapað umræðu á samfélagsmiðlum.

Danshreyfingarnar ekki tilviljun

Lagið og textinn í laginu er grípandi en myndbandið er bæði sláandi og á sama tíma mikilvægt. Það vekur fólk til umhugsunar og hafa margir haft orð á því að þetta sé tónlistarmyndband sem skipti  miklu máli, þó að mörgum þyki erfitt að horfa á það.  

Það er virkilega gaman að greina sérstök atriði myndbandsins og hafa margir reynt að gera samlíkingar við raunveruleikann og margir gert tilraunir til þess að greina hvað Glover var að reyna að segja með myndbandinu og öllum eftirtektarverðu smáatriðunum.  

Gambino dansar á mjög sérstakan hátt áður en hann skýtur sitt fyrsta fórnarlamb í myndbandinu. Danshöfundurinn er Sherrie SilverTwitter notendur voru mjög snöggir að vekja athygli á því að hann dansar og stillir sér upp eins og hann sé að líkja eftir karakternum Jim Crow, sem er táknræn fyrir ástand Bandaríkjanna áður en réttindi þeldökkra voru fest í lög.  

Fljótir að gleyma  

Í myndbandinu má einnig sjá mögulegar tengingar við hryðjuverkaárásir og fjöldamorð. Atriðið með gospelkórnum er talið vera um skotárásina í kirkju í Charleston árið 2015. 

Eftir árásina dansar Glover áfram með hópi ungmenna. Í umfjöllun Washington Post kemur fram að margar túlkanir hafi komið fram á þessu. Þetta gæti hugsanlega verið um að Bandaríkin hunsi ofbeldi of mikið eða gleymi því of fljótt. Í bandaríkjunum fara myndbönd í dreifingu af börnum að deyja í byssuárás, jafn auðveldlega og myndbönd af börnum að dansa á bílastæðum. Öðrum finnst hann sýna hvernig samfélög blökkumanna og þá sérstaklega börnin, læra að takast á við slík áföll. Á meðan Gambino dansar með hópi fólks er lögregla að elta einstaklinga í bakgrunninum. Lögreglubíllinn sést þó vel í horninu.  

Dansinn og svipbrigðin hans eru áberandi í myndbandinu og draga athyglina oft frá því sem er að gerast í bakgrunninum, sem er hugsanlega tilgangurinn. Ég mæli því með því að allir horfi á myndbandið oftar en einu sinni, helst þrisvar í röð, til þess að missa örugglega ekki af neinu í allri óreiðunni. 

Atriðið með gospelkórnum er talið endurspegla árás í kirkju í Charleston árið 2015.Youtube/Donald Glover

Allir að mynda á símann sinn

Það sem er einstaklega óhugnanlegt í myndbandinu er að eftir skotárásirnar er betur hlúið að byssunum sem notaðar voru heldur en fórnarlömbunum. Sérstaklega sterkur punktur í ljósi umræðunnar um byssulöggjöf í Bandaríkjunum. 

Það sem er að gerast fyrir aftan dansarana er líka mjög áhrifaríkt. Sjónarvottar eru þar með símana sína á lofti. Einfalt en mjög góð áminning á okkar raunveruleika þegar voðaverk eiga sér stað í heiminum í dag. Eina sönnunin um ofbeldi lögreglu hefur stundum verið upptökur á farsíma, em margar fara í dreifingu í samfélagsmiðlum og á vefsíðum fjölmiðla. 

Gamlir bílar

Margir Twitter notendur hafa bent á að bílarnir í myndbandinu eru allir eldri og algjör andstæða við nýju, dýru og flottu bílana sem eru áberandi í flestum tónlistarmyndböndum. Aðrir tengja þetta við morðið á Philando Castile sem var myrtur í gömlum bíl eða við allt ofbeldi lögreglunnar í Bandaríkjunum.

Sumir tengja bílana við myndirnar frá uppþotinu árið 1992 í Los Angeles, eftir að kviðdómur sýknaði lögreglumenn af ofbeldi við handtöku Rodney King.

Hvíti hesturinn sést hér í bakgrunni.Youtube/Donald Glover

Dauðinn á hvítum hesti 

Á einum tímapunkti í myndbandinu má sjá skuggalega hettuklædda veru á hvítum hesti koma ríðandi frá lögreglubíl. Í umfjöllun Independent kemur fram að þetta tengja margir við ádeilu á lögregluofbeldi. Í biblíunni er talað um að dauðinn komi á fölum hesti og tákni að endalokin eru framundan.  

Snemma í myndbandinu má sjá mann spila á gítar og var áberandi á Twitter að fólki fannst hann líkjast föður Trayvon Martin, sem lést eftir að hann var skotinn af lögreglumanni árið 2012. Það gæti þó auðvitað verið tilviljun. 

Í lok myndbandsins er atriði þar sem hópur fólks eltir Gambino eftir dimmum gangi og má sjá skelfinguna í andliti hans. Margir hafa tengt þetta atriði við the Sunken Place sem var fangelsi fyrir blökkumenn með geðræn vandamál, í kvikmyndinni Get OutGambino á einmitt lag í þeirri mynd. Daniel Kaluuya aðalleikari myndarinnar kynnti líka lagið áður en það var frumflutt í SNL

Myndband sem fær fólk til að hugsa 

Glover er sífellt að koma á óvart með hæfileikum sínum og sköpunargleði. Hann getur titlað sig leikari, handritshöfundur, tónlistarmaður, uppistandari, framleiðandi og leikstjóri. Hann sló í gegn í þáttunum Community en er fær nú mikið hrós þáttaröðina Atlanta, þar sem hann skrifar, leikur, framleiðir og leikstýrir. Hann leikur einnig Lando Carissian í kvikmyndinni Solo: A Star Wars Story. Glover vann Grammy verðlaun fyrr á þessu ári, sem rapparinn Gambino fyrir lagið Redbone. Á síðasta ári var hann á lista tímaritsins Times yfir 100 áhrifamestu einstaklingana í heiminum.

Leikstjóri myndbandsins er Hiro Murai sem einnig leikstýrði einnig nokkrum þáttum af Atlanta. Mörgum finnst að með myndbandinu nái þeir að vekja athygli á því hvernig menningin í Bandaríkjunum hefur að mörgu leyti skaðað blökkumenn.

Þetta myndband er svo sannarlega umdeilt en það vekur fólk tvímælalaust til umhugsunar, sem er eitthvað sem aðeins fáum tónlistarmyndböndum tekst á árangursríkan hátt. Það hefur verið skoðað tæplega 50 milljón sinnum á Youtube síðan á laugardag. Myndbandið má horfa á í spilaranum hér að neðan en varað er við því að ákveðin atriði kunni að vekja óhug.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×