Lífið

Sjáðu brot frá fyrstu æfingu Ara Ólafs

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ari á sviðinu í Lissabon í gær.
Ari á sviðinu í Lissabon í gær.
Eurovision-farinn Ari Ólafsson er mættur til Lissabon en hann kemur fram á fyrra undanúrslitakvöldinu í keppninni 8. maí.

Ari tók þátt í sinni fyrstu æfingu í MEO höllinni í borginni en 63. keppnin verður haldin þar.

Ákveðin breyting hefur verið gerð á atriði Ara Ólafssonar en í undankeppninni hér á landi var hann með hljómsveit á sviðinu. Ákveðið hefur verið að sleppa henni og verða bakraddir með söngvaranum þegar hann flytur lagið Our Choice í Portúgal.

Hér að neðan má sjá brot úr fyrstu æfingu Ara frá því í gær. Fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 verður með ítarlega umfjöllun frá keppninni í Portúgal. 


Tengdar fréttir

Stigagjöf dómnefnda í Eurovision breytt

Tilkynnt hefur verið um breytingar á því hvernig stigagjöf dómnefnda verða reiknuð út í Eurovision, Söngvakeppni evrópskra sjónvarsstöðva.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×