Viðskipti innlent

Bein útsending: Tækifæri ferðaþjónustunnar í stafrænum heimi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr Kerlingafjöllum.
Úr Kerlingafjöllum. vísir/vilhelm
Doug Lansky er aðalfyrirlesari á morgunfundi Ferðamálastofu sem haldinn er í samstarfi við Íslenska ferðaklasann í dag. Doug er þekktur fyrirlesari, rithöfundur og ráðgjafi sem hefur ferðast um 120 lönd síðustu 20 ár. Fundurinn hefst klukkan 9 og stendur yfir til klukkan 11:30.

Doug hefur skrifað fjölmargar bækur, meðal annars fyrir Lonely Planet og verið pistlahöfundur í yfir 40 dagblöðum víðsvegar um heiminn. Þá hefur hann gert umfjallanir fyrir fjölmiðla á borð við Esquire, The Guardian, The National Geographic Traveler og The Guardian.

Á morgunfundinum mun hann fjalla um snjallar leiðir í stefnumótun ferðaþjónustu í erindi sem ber heitið „A Smarter Road Map to Manage Tourism“.

Yfirskrift fundarins er „Tækifæri ferðaþjónustunnar í stafrænum heimi“ og með honum vilja Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklasinn leggja sitt af mörkum til að vekja umræðu og gera íslenska ferðaþjónustu meðvitaða um þær öru tæknibreytingar sem eru að verða í heimi ferðaþjónustunnar.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, setur fundinn og auk Doug Lansky munu innlendir fyrirlesarar með reynslu af málaflokknum deila reynslu sinni.

Dagskrá:

• Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, setur málþingið

• Fjórða iðnbyltingin og ferðaþjónusta

-Bárður Örn Gunnarsson, eigandi Svartatinds

• Verðmætir ferðamenn eru úti að aka

-Soffía Kristín Þórðardóttir, forstöðumaður Ferðalausna Origo

• Arctic Adventures: Rekstur í stafrænu umhverfi

-Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Arctic Adventures

• Smarter Roadmap to Manage Tourism

-Doug Lansky, höfundur ferðabóka, alþjóðlegur fyrirlesari og ráðgjafi í ferðamálum

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, stýrir fundinum. Samhliða fundinum munu nokkur fyrirtæki og frumkvöðlar á sviði tæknilausna í ferðaþjónustu kynna starfsemi sína.

Uppfært klukkan 8:48 þegar í ljós kom að morgunkaffi hófst klukkan 8:30 en fundurinn sjálfur klukkna 9.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×