Lífið

Sextán ára maltnesk stúlka hristi af sér stressið og kom öllum á óvart

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlega fallegur flutningur.
Ótrúlega fallegur flutningur.
Amy Marie Borg frá Möltu kom heldur betur á óvart þegar hún mætti í áheyrnarprufu í Britains Got Talent á dögunum.

Borg er aðeins 16 ára gömul og flutti hún fallega óperu á sviðinu.

Þessi sextán ára stelpa var virkilega stressuð þegar hún stóð fyrir framan dómnefndina en náði að hrista stressið af sér og söng gjörsamlega eins og engill.

Hér að neðan má sjá þennan magnaða flutning sem snerti við öllum áhorfendum í salnum. Britains Got Talent er á Stöð 3 á laugardagskvöldum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×