Fótbolti

Rúnar Alex: Gæti verið mitt fyrsta og síðasta tækifæri til að fara á HM

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Rúnar Alex Rúnarsson vill komast á HM eins og svo margir.
Rúnar Alex Rúnarsson vill komast á HM eins og svo margir. vísir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður í fótbolta, og félagar hans í danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland standa í ströngu þessa dagana í meistaraumspili dönsku úrvalsdeildarinnar.

Danska deildin breytti fyrirkomulaginu fyrir síðustu leiktíð þannig að nú spila efstu sex lið deildarinnar innbyrðis leiki í sérstöku meistaraumspili þannig aðeins er um stórleiki að ræða.

Nordsjælland er í þriðja sæti með 54 stig, fimmtán stigum á eftir Midtjylland í baráttunni um þriðja sætið og fjórum stigum á undan FC Kaupmannahöfn í baráttunni um þriðja sætið sem er það síðasta sem gefur Evrópusæti.

„Umspilið er miklu skemmtilegra í ár því það er allt undir í hverjum leik fyrir okkur og hvert tap hefur miklar afleiðingar. Þannig á það að vera. Það er mikil pressa í hverjum leik og maður finnur fyrir pressu að standa sig vel fyrir félagið og til að sýna sig fyrir landsliðsþjálfaranum,“ segir Rúnar Alex í viðtali við heimasíðu félagsins.

„Í fyrra vorum við að þróa nýtt lið en nú eru medalíur í boði og Evrópusæti. Ég gæti ekki ímyndað mér betri endi á tímabilinu en að fá verðlaun, komast í Evrópu og fara svo með Íslandi á HM. Það yrði fullkomið,“ segir hann.

Rúnar Alex virðist eiga öruggt sæti í íslenska HM-hópnum en hann er orðinn annar markvörður á eftir Hannesi Þór Halldórssyni sem er í fallumspilinu með sínu liði, Randers.

„Það yrði svo stórt fyrir mig að komast á HM. Þetta gæti verið fyrsta og síðasta tækifærið fyrir mig að spila á HM. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland verður með og mögulega gerist það aldrei aftur þar sem við erum svo lítið land. Þetta er eitthvað sem ég vil upplifa,“ segir Rúnar Alex Rúnarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×