Íslenski boltinn

Pepsi-spáin 2018: Áfram uppgangur fyrir norðan

Óskar Ófeigur Jónsson og Tómas Þór Þórðarson skrifa
Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði 9 mörk fyrir KA síðasta sumar.
Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði 9 mörk fyrir KA síðasta sumar. Vísir/Stefán
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Pepsi-deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Íslandsmótið hefst 27. apríl en Valsmenn eiga titil að verja eftir að hafa orðið meistarar í 21. sinn í sögu félagsins á síðustu leiktíð.

Íþróttadeild spáir KA 4. sæti Pepsi-deildarinnar í sumar sem er þremur sætum ofar en liðið endaði í fyrra. Mikill stöðugleiki einkennir KA-menn þessi misserin en þjálfarinn er að fara inn í sitt fjórða tímabil og leikmannahópurinn hefur lítið breyst eftir stórkaup fyrir tveimur árum síðan. Liðið hefur ákveðið einkenni og gæti farið með himinskautum í sumar ef allt gengur upp.

Seinni hálfleikurinn var helsti óvinur KA-manna á síðasta ári en liðið hefði orðið Íslandsmeistari ef alltaf hefði verið flautað til leiksloka eftir 45 mínútur. Liðið náði alltof sjaldan að halda út í góðri stöðu og missti niður sigra í töpuð sit alltof oft. En, liðið er reynslunni ríkara núna með betri vörn og betri markvörð þannig það horfir til betri vega í seinni hálfleik.

Þjálfari KA er Srjdan Tufegdzic, betur þekktur sem Túfa. Þessi afar geðþekki Serbi hefur verið rúman áratug í KA eftir að hann kom þangað fyrst sem leikmaður árið 2006. Hann tók við þjálfun meistaraflokksins á miðju sumri 2015 og hefur gert stórgóða hluti síðan þá. Túfa brennur fyrir KA sem bæði leikmenn og stuðningsmenn kunna svo sannarlega að meta og svo er hann líka afar fær þjálfari og klókur í leikmannakaupum.

Svona munum við eftir KA

KA-menn komu af miklum krafti inn í deildina á síðustu leiktíð, bæði inn á vellinum og uppi í stúku. Gulir og glaðir stuðningsmenn þeirra vöktu mikla athygli með framkvæmdastjórann fremstan í flokki klæddan eins og sólskinsdreng.

Þessi öfluga byrjun skilaði liðinu sjö stigum af fyrstu níu mögulegum, þar á meðal 3-1 sigri gegn Breiðabliki í fyrstu umferðinni. KA-menn héldu ekki alveg dampi út leiktíðina en voru öruggir og rúmlega það með áframhaldandi sæti í efstu deild.

Liðið og leikmenn
grafvík/gvendur
Norðanmenn hafa á að skipa mjög sterku byrjunarliði með hágæða leikmenn í mörgum stöðum hvort sem um ræðir í vörn, miðju eða á sókn. Bæði eru miklir naglar í liðinu sem og öflugir fótboltamenn sem geta búið til eitthvað úr litlu en það er oft uppskrift að árangri.

Þrír sem KA treystir á:

Cristian Martínez: KA gaf stuðningsmönnum sínum jólagjöf rétt fyrir hátíð ljóss og friðar þegar að spænski markvörðurinn flaug norður frá Ólafsvík. Martínez var einn besti markvörður deildarinnar í fyrra og KA þurfti að finna nýjan markvörð eftir að Srjdan Rajkovic lagði hanskana á hilluna. Martínez er frábær á milli stanganna en kannski ekki sá besti í teignum. Hann er því heppinn að vera með frábæra miðverði sem ættu að vernda hann.

Hallgrímur Jónasson: Það sýnir bersýnilega metnað KA-manna að fá þennan frábæra leikmann og fyrrverandi landsliðsmann norður. Hallgrímur er að koma heim á besta aldri og var að byrja hvern einasta leik hjá dönsku úrvalsdeildarliði þegar að hann var heill þannig hann er ekki að koma heim á einhverjum niðurtúr. Hallgrímur er afskaplega öflugur leikmaður; rólegur og yfirvegaður og leiðtogi í hópnum.

Hallgrímur Mar Steingrímsson: KA er með einn besta og skemmtilegsta leikmann deildarinnar innan sinna raða. Húsvíkingurinn er töframaður með boltann en hann getur fíflað hvern sem er á litlu svæði og er bæði öflugur sendingarmaður sem og skotmaður. Aukaspyrnur hans eru einnig afskaplega góðar.

Markaðurinn
grafík/gvendur
KA-menn voru ekki að hrúga inn mörgum mönnum en þeir styrktu nákvæmlega það sem að þurfti að styrkja með því að fá sér markvörð og Hallgrím sem ætti ef allt er eðlilegt að vera besti miðvörður deildarinnar. Túfa fann sér svo vinstri bakvörð til að auka breiddina í varnarleiknum.

Norðanmenn munu ekki sakna Almarrs Ormarssonar eins mikið vegna þess að þeir fá inn Archange Nkumu sem var meiddur eiginlega alla síðustu leiktíð en þeir munu sakna Emils Lyng sem jók breiddina til muna í sóknarleiknum og skilaði slatta af mörkum.

Bjarni Mark Antonsson er spennandi leikmaður sem gefur Túfa meiri breidd inn á miðjunni.

Markaðseinkunn: B

Hvað segir sérfræðingurinn?

„Það var hreint frábært að fylgjast með KA-síðasta sumar og stemningunni í kringum liðið,“ segir Reynir Leósson, einn sérfræðinga Pepsi-markanna, um KA-menn.

„KA-liðið var gott í fyrra og vel mannað en nú reynir á hvernig menn koma inn í annað tímabil og reyna að fylgja góðum árangri eftir. Menn þurfa að taka næsta skref en KA-liðið er vissulega búið að styrkja sig með Hallgrími sem er frábær fyrir liðið.“

„Spurningamerkið verður svolítið hvort Hallgrímur Mar nái að fylgja eftir góðu síðasta tímabili og hvort KA nær að fylla í skarð Emils Lyng. Ef að KA-menn ná upp sömu stemningu og sama kjarna í stuðningi fyrir utan völlinn verður þetta fínt tímabil hjá þeim,“ segir Reynir Leósson.

Spurt og svarað
grafík/gvendur
Það sem við vitum um KA er … að liðið hefur sitt einkenni og nokkuð fastmótaðan leikstíl undir stjórn þjálfara síns sem þekkir gildi liðsins og félagsins inn og út. Túfa hefur byggt á öflugum Inkasso-sumarglugga fyrir tveimur árum og reynt að hrófla ekki of mikið við liðinu heldur bæta minna við en hafa leikmennina þeim mun betri. Miðvarðaparið gæti verið það besta í deildinni og Martínez er betri markvörður en Rajkovic. Þegar að allir eru heilir er KA með eitt besta lið deildarinnar á pappír.

Spurningamerkin eru … hvað gerist þegar að menn lenda í banni og meiðslum. Auðvitað er breiddin spurning fyrir flest lið deildarinnar en einna helst hjá KA. Gæðamunurinn á fyrstu 11-13 leikmönnunum niður í þá næstu er mikill og á þeim getur það ráðist hvort þeir gulu taki þátt í Evrópubaráttu eða verða í miðjumoði. Svo er stóra spurningin hvort KA-menn séu hreinlega tilbúnir í alvöru toppbaráttu eða Evrópubaráttu eða hvort þeir séu sjálfir bara að undirbúa sig undir að sigla lygnan sjó.

Binni bjartsýni og Siggi svartsýni

Binni: Okkur vantaði alvöru miðvörð með Guðmanni og frábæran markvörð og það var nákvæmlega það sem að stjórnin gaf okkur. Þetta gæti einfaldlega ekki verið betra. Á meðan önnur lið eru annað hvort að hrúga inn leikmönnum erum við að fá þá réttu og enga smá leikmenn. Liðið var nógu gott til að fara í Evrópubaráttu á síðustu leiktíð en við vorum bara klaufar.

Hallgrímur Jónasson er besti leikmaður deildarinnar og hefur verið að sýna það í vetur. Hann og Guðmann er varnarmúr sem ekki er hægt að brjóta niður. Að hafa svo áhyggjur af Hallgrími Mar og einhverju annars tímabils heilkenni hjá honum er líka algjör óþarfi. Hann er búinn að pakka saman deildinni með Víkingi og svo með okkur. Hann verður bara betri. Allt annað en Evrópubarátta eru vonbrigði.

Siggi: Þú munt sjá ansi snemma á tímabilinu hversu mikið við munum sakna Emils Lyng, Binni. Okkur sárvantar annan sóknarmann hvort sem um ræðir kantmann eða framherja, einhvern sem að getur leyst nokkrar stöður þarna frammi. Ásgeir Sigurgeirs er búinn að vera meiddur og Steinþór Freyr er víst tæpur eins og alltaf.

Það er alveg rétt að byrjunarliðið okkar með alla heila er sterkt en hvenær gerist það að menn stilli upp sama byrjunarliðinu 22 leiki í röð? Þetta er ekki EM 2016. Breiddin verður okkur að falli og við endum um miðja deild sem verða samt ekkert það mikil vonbrigði ef uppbyggingin heldur svo áfram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×