Handbolti

Tveir örvhentir reyna fyrir sér í handboltakeilu | Myndband

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Einar Rafn Eiðsson undirbýr sig fyrir skot.
Einar Rafn Eiðsson undirbýr sig fyrir skot.
Undanúrslitaeinvígi Selfoss og FH hefst á Selfossi í kvöld klukkan 19.30 en Seinni bylgjan hefur upphitun klukkan 19.00. Búast má við frábærum leik í frábæru einvígi.

Olís heldur áfram að hita upp fyrir einvígin í úrslitakeppninni með skemmtilegum þrautum og nú var komi að Teiti Erni Einarssyni úr Selfossi og Einari Rafni Eiðssyni úr FH að spreyta sig í handboltakeilu.

Þetta eru tveir af bestu skotmönnum og markahrókum deildarinnar en þeir eiga það sameiginlegt að vera örvhentir.

Hér að neðan má sjá hvernig til tókst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×