Íslenski boltinn

ÍBV sækir franskan framherja

Guy í leik með Marseille
Guy í leik með Marseille vísir/getty
ÍBV hefur samið við franskan framherja að nafni Guy Gnabouyou. Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, staðfesti komu leikmannsins við Fótbolta.net.

Frakkinn er 28 ára gamall og skrifaði hann undir tveggja ára samning við Eyjamenn. Hann er uppalinn hjá franska félaginu Marseille og á að baki fimm leiki með aðalliði félagsins.

Síðast var hann á mála hjá Torquay í ensku utandeildinni í vetur.

ÍBV hefur leik í Pepsi deild karla á laugardaginn þegar liðið heimsækir Breiðablik.


Tengdar fréttir

Kaldar kveðjur til fyrrum sérfræðinga

Upphitunarþáttur Pepsimarkanna var sýndur á Stöð 2 Sport í gærkvöld þar sem farið var yfir öll lið deildarinnar og spáð í komandi tímabil. Víkingi R. og bikarmeisturum ÍBV var spáð falli úr deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×