Innlent

Guðlaugur Þór skorar á öryggisráðið

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið aukaframlög Íslands í neyðaraðstoð til bágstaddra Sýrlendinga. Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu verður 75 milljónum bætt við framlög Íslands á tveimur árum, umfram þær 800 milljónir sem áður hafði verið heitið.

Áætlað er að yfir þrettán milljónir Sýrlendinga þurfi á neyðaraðstoð og vernd að halda vegna hörmunga borgarastyrjaldarinnar sem þar geisar. Tæplega sjö milljónir manna eru á vergangi í landinu og 5,6 milljónir manna hafa flúið til annarra landa.

„Sýrlenska þjóðin hefur búið við þjáningar í sjö ár og horft á hundruð þúsunda falla í valinn,“ sagði Guðlaugur Þór á Sýrlandsráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna í Brussel­ sem nú stendur yfir. „Við skorum á öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að rísa undir áskoruninni og finna leiðir til lausnar.“




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×