Skoðun

Lundalíf

Líf Magneudóttir skrifar
Nýlega bárust þær dapurlegu fréttir að alþjóðasamtök fuglaverndarfélaga hefðu sett lundann á válista fuglategunda sem væru í bráðri útrýmingahættu. Þetta eru grafalvarlegar fréttir fyrir okkur Íslendinga, því nærri 60% af lundastofninum verpir á Íslandi. Okkur ber því skylda til að varðveita þennan fallega fugl og varpstöðvar hans.

Einstakt varpland innan borgarmarka

Á síðustu árum hefur lundinn orðið óopinber einkennisfugl Íslands, fulltrúi náttúrufegurðarinnar sem dregur milljónir ferðamanna til landsins. Tugþúsundir ferðamanna fara í lundaskoðunarferðir á sundunum við Reykjavík.

Í borgarlandinu er nefnilega að finna stórar lundabyggðir. Talið er að í Akurey verpi um 19.000 lundapör og í Engey verpi um 8.500 pör. Samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum gerir það eyjarnar að mikilvægum varpstöðvum lundans. Í upphafi yfirstandandi kjörtímabils samþykkti Umhverfisráð að Akurey skyldi friðuð.

Fréttir af því að lundinn sé á válista ættu því að hringja viðvörunarbjöllum: Friðlýsing Akureyjar þolir enga bið!

Fjölgum friðlýstum svæðum í borginni

Verndun Akureyjar er mikilvægt skref til þess að fjölga friðlýstum svæðum í borgarlandinu. Á alþjóðlegan mælikvarða eigum við í Reykjavík mjög mikið af friðlýstum svæðum á hvern íbúa. Við verðum að standa vörð um þessa nálægð við náttúruna, enda er hún ein mikilvægasta sérstaða Reykjavíkur.

Í því sambandi höfum við í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði lagt áherslu á að á næsta kjörtímabili verð ráðist í metnaðarfullar aðgerðir til þess að stækka friðlýst svæði innan borgarinnar, auka við núverandi svæði, bæta aðgengi og umgengni og koma upp nýjum upplýsingaskiltum til að fræða aðkomufólk og innfædda um náttúruna og sögu borgarlandsins.

Borgarfriðland frá heiðum út á sundin

Reykjavík á að stefna að því að tengja net slíkra verndaðra svæða saman í eitt stórt borgarfriðland sem myndi teygja sig ofan af heiðum og út á sundin.

Slíkt friðland er mikilvægt til þess að varðveita þá ómetanlegu náttúru sem er steinsnar frá íbúum höfuðborgarinnar. Það tryggir að þeir hafi aðgang að útivistarmöguleikum í framtíðinni en væri einnig mikilvæg lyftistöng fyrir ferðaþjónustu í Reykjavíkur.

Umfram allt er það þó skylda okkar við lífríki jarðar og komandi kynslóðir að varðveita og vernda líffræðilega fjölbreytni og náttúruna. Íbúar Reykjavíkur eru umkringdir einstökum náttúruperlum og er Akurey ein þeirra. Þar líta dagsins ljós þúsundir lundaunga á ári hverju. Sýnum í verki að okkur þykir vænt um náttúruna og dýralífið sem hana prýðir og friðum Akurey.




Skoðun

Sjá meira


×