Lífið

Gleðitárin streymdu þegar þessi tíu ára drengur heyrði viðbrögð dómnefndar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Calum Courtney tók lagið Who's Lovin You.
Calum Courtney tók lagið Who's Lovin You.
Hinn tíu ára Calum Courtney tók lagið Who's Lovin You með Jackson 5 í áheyrnaprufu í Britains Got Talent á dögunum og vakti hann strax mikla athygli.

Courtney flutti lagið einstaklega vel og náði til allra áhorfenda í salnum um leið og hann byrjaði að syngja.

Dómnefndin var síðan yfir sig hrifin og flaug drengurinn að sjálfsögðu í gegn. Tilfinningarnar báru þennan tíu ár strák ofurliði þegar hann heyrði viðbrögð dómnefndar.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×