Innlent

Mikill meirihluti bæjarbúa vill strompinn burt

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eins og sést á þessari mynd frá Akranes er strompur ansi áberandi í bæjarmyndinni.
Eins og sést á þessari mynd frá Akranes er strompur ansi áberandi í bæjarmyndinni. vísir/gva
Mikill meirihluti þeirra íbúa Akraness sem tóku þátt í íbúakosningu um framtíð sementsstrompsins, eða als 94,25 prósent, vilja strompinn burt. Um var að ræða ráðgefandi könnun á meðal íbúa Akraness sem hófst þann 18. apríl síðastliðinn og lauk á miðnætti þann 24. apríl. Fór könnunin fram í gegnum íbúagátt kaupstaðarins.

Að því er fram kemur kusu alls 1023 íbúar að strompurinn skyldi felldur og 63 íbúar kusu að strompurinn ætti að standa áfram.

Var niðurstaðan lögð fyrir bæjarráð fyrr í dag og lagði bæjarráð til að þessi niðurstaða yðri höfð til hliðsjónar við frekari skipulagningu á áframhaldandi uppbyggingu á Sementsreit. Sævari Frey Þráinssyni, bæjarstjóra, var falið að fylgja málinu eftir til skipulagsfulltrúa.

„Við erum mjög ánægð með þátttöku íbúa í þessari kosningu og með niðurstöðu hennar. Ljóst er að íbúar vilja verja fjármunum bæjarins í aðra hluti en viðhald á sementsstrompi og fögnum við þessu aukna lýðræði í stórum verkefnum sem bærinn er með, þetta verður aðeins byrjunin að því. Bærinn mun vitaskuld halda í þá atvinnusögu sem Sementsverksmiðjan kom með hingað til Akraness og útbúa minnisvarða um hana. Næstu skref hjá okkur er að klára skipulags svæðisins til undirbúnings niðurrifs sementsstrompsins,“ segir Sævar í tilkynningu frá bænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×