Viðskipti innlent

Harpa stendur aðeins betur

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu var gestur Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi í morgun. Harpa kynnti nýverið ársreikning sinn og Svanhildur segir að það séu ákveðin góð tíðindi í þessum ársreikningi. Róðurinn hefur þó ekki alltaf verið léttur.

„Þetta er búið að vera mjög erfitt og það eru margar ástæður fyrir því, þessi fasteign er auðvitað stór og þung og dýr í rekstri. Ég held að þjóðin þekki þessa löngu og leiðinlegu sögu um fasteignagjöldin sem að Harpa hefur verið í slag við Þjóðskrá Íslands um og svo er ýmislegt annað sem kemur til,“ segir Svanhildur.

Framlegðin orðin betri

„Við tökum vel til heima hjá okkur, gerum allt sem í okkar valdi stendur við sem berum ábyrgð á rekstrinum í Hörpu til þess að hann verði eins góður og nokkur kostur er. Okkur hefur tekist núna með samstilltu átaki starfsmanna að ná árangri í því og ég er alveg ótrúlega stolt af því og þakklát fyrir það. Sem sagt tekjurnar lækka aðeins á milli ára en gjöldin lækka líka. Þannig að framlegðin af þessari starfsemi er betri og heilbrigðari heldur en nokkru sinni fyrr,“ segir Svanhildur.

„Í hverju felast verðmætin?“

Svanhildur segir að hótelið sem upphaflega átti að rísa samhliða Hörpu verði komið árið 2020 og það verði áhugavert að sjá það samstarf. Svanhildur segir einnig sýna því skilning að margar mótmælaraddir heyrist þegar talið berst að Hörpu. ,,Ég hef bara alveg skilning á því og ég veit það alveg að fólk er mjög passasamt á í hvað skattpeningarnir fara. Þá kemur aftur að því sem ég var að nefna, í hverju felast verðmætin?“ segir Svanhildur.

Viðtal Kristjáns við Svanhildi má heyra í spilaranum hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×