Lífið

Hugrún og Daði Freyr úr leik í Allir geta dansað

Sylvía Hall skrifar
Hugrún og Daði Freyr duttu úr leik í Allir geta dansað í kvöld.
Hugrún og Daði Freyr duttu úr leik í Allir geta dansað í kvöld. Vísir/Stefán
Dansparið Hugrún Halldórsdóttir og Daði Freyr Guðjónsson voru send heim úr þættinum Allir geta dansað í kvöld.

Parið dansaði cha-cha-cha við lagið American Boy og hlutu 22 stig frá dómnefnd og voru jöfn Hönnu Rún og Bergþóri að stigum, en þau Jóhanna Guðrún og Max Petrov voru stigahæst með 30 stig frá dómnefnd fyrir tangó við lagið The Greatest Show úr myndinni The Greatest Showman.

Fjögur pör fóru áfram í úrslitaþáttinn sem verður sýndur á Stöð 2 næsta sunnudag, en það eru þau Ebba og Javi, Bergþór og Hanna Rún, Arnar Grant og Lilja og stigahæsta parið Jóhanna Guðrún og Max sem munu keppa um glimmerbikarinn.

Í þáttunum Allir geta dansað keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir dansa við tíu fagdansara og stendur eitt par uppi sem sigurvegari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×