Fótbolti

Bara eitt lið hefur afrekað það sem City þarf að gera í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Barcelona liðið tímabilið 1985 til 1986.
Barcelona liðið tímabilið 1985 til 1986. Vísir/Getty
Liðsmenn Manchester City eru í djúpri holu þegar þeir fá Liverpool í heimsókn í Meistaradeildinni í kvöld en fyrir 32 árum þá tókst liði að koma til baka úr sömu stöðu í Evrópukeppni meistaraliða.

Liverpool vann fyrri leikinn 3-0 á heimavelli sínum á Anfield í síðustu viku og býr nú bæði að því að vera með þriggja marka forskot og að City-liðinu hafi ekki tekist að skora útivallarmark.

Þetta þýðir að það nægir Manchetser City ekki að vinna 4-1 eða 5-2 í kvöld því þá færi Liverpool áfram á mörkum á útivelli og það yrði að framlengja ef leikurinn endaði 3-0 fyrir City.

Bara eitt lið í sögu Evrópukeppni meistaraliða hefur afrekað það sem City þarf að gera í kvöld en það var lið Barcelona tímabilið 1985-86.





Sænska liðið IFK Gautaborg vann þá fyrri leikinn á móti Barcelona 3-0 á heimavelli sínum á Ullevi í Gautaborg. Barcelona vann seinni leikinn 3-0 á Camp Nou og úrslitin réðust síðan í vítakeppni.

Barcelona klikkaði á víti á undan en það kom ekki að sök því Svíarnir klikkuðu á tveimur síðustu vítaspyrnum sínum og Börsungar unnu vítakeppnina 5-4.

Pichi Alonso hafði verið hetja Barcelona í venjulegum leiktíma því hann skoraði öll þrjú mörk liðsins. Það voru einu þrjú mörkin hans á ferlinum í Evrópukeppni meistaraliða.

Barcelona mætti Steua Búkarest í úrslitaleiknum sem endaði 0-0. Helmuth Duckadam, markvörður Steaua Búkarest, varði allar fjórar vítaspyrnur Barcelona í vítakeppninni og tryggði rúmenska félaginu þar með titilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×