Lífið

Jón Jónsson og Hafdís selja slotið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Jónsson og Hafdís færa sig um set.
Jón Jónsson og Hafdís færa sig um set.
Hjónin Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir hafa sett íbúð sína í Löngulínunni í Garðabæ á söluskrá.

Jón er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og starfar Hafdís sem tannlæknir.

Ásett verð er 57,9 milljónir króna en um er að ræða 114 fermetra fjögurra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2008.

Fasteignamat eignarinnar er 46,5 milljónir. Jón og Hafdís giftu sig síðasta sumar eins og Vísir greindi frá.

Hér að neðan má sjá myndir af íbúðinni.

Björt og falleg stofa.
Sjónvarpshol upp á 10.
Fallegt eldhús hjá Jóni og Hafdísi.
Virkilega kósý lokaðar svalir.
Hjónin eiga saman tvö börn og er hér fallegt barnaherbergi.
Brúðkaupsmyndirnar fyrir ofan hjónarúmið. Jón og Hafdís gengu í það heilaga síðasta sumar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×