Bíó og sjónvarp

Snarlarar húðskammaðir á hljóðlátri hrollvekju sem er vinsælasta mynd Bandaríkjanna um þessar mundir

Birgir Olgeirsson skrifar
John Krasinski er leikstjóri myndarinnar og einn af aðalleikurum.
John Krasinski er leikstjóri myndarinnar og einn af aðalleikurum. IMDB
Hrollvekjan A Quiet Place hefur vakið verðskuldaða athygli og trónir nú á toppi aðsóknarlista Bandaríkjanna.

Myndin segir frá fjölskyldu sem býr á afviknum stað í algjörri þögn. Þær aðstæður eru tilkomnar vegna skrímsla sem ráðast á mannfólk við hvert einasta hljóð. Til að halda lífi þarf fjölskyldan því eftir bestu getu að lifa eins hljóðlátu lífi og hún getur.

Söguþráður myndarinnar gerir það því að verkum að hún er mjög hljóðlát en greint er frá því á vef breska ríkisútvarpsins BBC að öll hljóð sem áhorfendur í kvikmyndahúsum gefa frá sér séu afar illa liðin af þeim sem eru að reyna að lifa sig inn í myndina.

Hafa því þeir sem ákveða að japla á snakki eða poppkorni, eða verja ómældu tíma í að reyna að opna sælgætisbréf, verið litnir hornauga á sýningum þessarar myndar.

BBC segir frá því að þeir sem ekki geta setið í kvikmyndasal í 90 mínútur án þess að fá sér eitthvað að borða sé svo gott sem skammaðir af öðrum á sýningum þessarar myndar.

Í umfjöllun BBC um málið er til að mynda vitnað í breska útvarpsmanninn Nick Grimshaw sem húðskammaði slíka bíógesti nýlega eftir að hafa séð A Quiet Place.

Leikstjóri myndarinnar er John Krasinski, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk í bandarísku útgáfunni af gamanþáttunum The OfficeKrasinski leikur eitt af aðalhlutverkum myndarinnar ásamt Emily Blunt ásamt hinni fjórtán ára gömlu leikkonu Millicent Simmonds sem hefur missti heyrnina ung að aldri. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×