Viðskipti innlent

Væntur hagnaður Vís 650 milljónum krónum hærri en spár gerðu ráð fyrir

Birgir Olgeirsson skrifar
Endurskoðuð áætlun félagsins gerir nú ráð fyrir að hagnaður ársins 2018 fyrir skatta verði 3.412 milljónir króna í stað 3.108 milljónir króna.
Endurskoðuð áætlun félagsins gerir nú ráð fyrir að hagnaður ársins 2018 fyrir skatta verði 3.412 milljónir króna í stað 3.108 milljónir króna. Vísir/Anton
Drög að árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs sýna að vænt afkoma Vátryggingafélags Íslands er hagstæðari en afkomuspá gerði ráð fyrir. Frávikið hefur verið tilkynnt sérstaklega til Kauphallarinnar þar sem það nemur meira en 10 prósentum af væntum hagnaði ársins fyrir skatta.

Í tilkynningunni kemur fram að væntur hagnaður félagsins á fyrsta ársfjórðungi fyrir skatta sé um 930 milljónir króna en afkomuspá félagsins gerði ráð fyrir hagnaði upp á 276 milljónir króna á sama tímabili. Væntur hagnaður er því um 650 milljónum krónum hærri en afkomuspáin hafði gert ráð fyrir.

Ástæðan fyrir þessu er sögð sú að ávöxtun skráðra fjárfestingaeigna félagsins reyndist hagstæðari um sem nemur 350 milljónum króna umfram afkomuspá fyrir fjórðunginn og þá reyndist afkoma af vátryggingarekstri einnig umfram væntingar um sem nemur 300 milljónum króna fyrir sama tímabil.

Er góður árangur af vátryggingarekstri á fyrsta ársfjórðungi sagður gera það jafnframt að verkum að ekki gerist þörf á að uppfæra spá félagsins um samsett hlutfall fyrir árið þrátt fyrir tjón sem félagið ber vegna brunans sem varð í Miðhrauni 4 í síðustu viku.

Endurskoðuð áætlun félagsins gerir nú ráð fyrir að hagnaður ársins 2018 fyrir skatta verði 3.412 milljónir króna í stað 3.108 milljónir króna.

Þess er getið að þar sem eign VÍS í Kviku banka hf. sé umfram 20 prósent af útgefnu hlutafé Kviku reiknast sú eign samkvæmt hlutdeildaraðferð og hefur hækkun á markaðsvirði Kviku því ekki áhrif á þessa niðurstöðu. Munur á markaðsvirði Kviku og bókfærðu virði samkvæmt hlutdeildaraðferð er um 730 milljónir króna miðað við dagslokagengi þann 9. apríl.

Í tilkynningunni kemur fram að uppfærð rekstrarspá verður birt samhliða birtingu árshlutauppgjörs fyrsta ársfjórðungs þann 2. maí næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×