Körfubolti

NBA: Golden State tapaði með 40 stigum í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Draymond Green og félagar fengu skell í nótt.
Draymond Green og félagar fengu skell í nótt. Vísir/Getty
Golden State Warriors liðið hefur titil að verja í NBA-deildinni í körfubolta en það er ekki hægt að segja að staðan sé góð á liðinu nú rétt fyrir úrslitakeppnina. Utah Jazz vann Golden State 119-79 í nótt. Philadelphia 76ers vann sinn fimmtánda leik í röð og Houston Rockets fagnaði sigri í 31. sinn í síðustu 34 leikjum.

Donovan Mitchell skoraði 22 stig og bætti nýliðametið í þriggja stiga skotum þegar Utah Jazz vann 40 stiga sigur á NBA-meisturum Golden State Warriors, 119-79. Mitchell setti niður fjóra þrista og er þar með kominn með 186 þriggja stiga körfur á tímabilinu. Damian Lillard átti áður metið.

Derrick Favors var með 16 stig og 9 fráköst fyrir Utah, Svíinn Jonas Jerebko skoraði 14 stig og þeir Rudy Gobert og Ricky Rubio voru báðir með 13 stig. Utah getur tryggt sér þriðja sætið í Vesturdeildinni með sigri á Portland í lokaleiknum.

Klay Thompson skoraði 23 stig og Kevin Durant var með 13 stig í síðasta leik Golden State liðsins í deildarkeppninni. Liðið endar með 58 sigra í öðrum sætinu í Vesturdeildinni. Liðið komst aldrei yfir í þessum leik og hitti aðeins úr 33 prósent skota sinna.

Þetta 40 stiga tap er það stærsta hjá GSW undir stjórn Steve Kerr. „Við þurfum að finna aftur keppnisandann. Við þurfum að finna kraftinn og við þurfum að fá gleðina aftur sem hefur vantað hjá okkur. Við verðum að koma hausnum á réttan stað,“ sagði Steve Kerr sem sá sitt lið lenda mest 45 stigum undir í leiknum..

JJ Redick skoraði 28 stig fyrir Philadelphia 76ers sem vann 121-113 sigur á Atlanta Hawks og setti nýtt félagsmet með því að vinna sinn fimmtánda leik í röð. Með þessum sigri komst Sixers liðið nær því að tryggja sér þriðja sætið í Austurdeildinni.

Ben Simmons spilaði veikur en endaði með 14 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar en Reddick var sjóðheitur og hitti meðal annars úr 6 af 9 þriggja stiga skotum sínum. Sixers liðið skoraði alls sautján þrista í leiknum.



 

Chris Paul var með 22 stig og bætti við 21 stigi og 10 stoðsendingum þegar Houston Rockets vann 105-99 útisigur á Los Angeles Lakers. Þetta var 31. sigur Houston liðsins í síðustu 34 leikjum.

Ein athyglisverðasta frammistaða leiksins var þó hjá hinum 32 ára gamla Andre Ingram í liði LA Lakers. Hann var þarna að spila sinn fyrsta leik í NBA eftir að hafa verið kallaður upp úr G-deildini. Andre Ingram endaði með 19 stig og hitti úr 4 af 5 þriggja stiga skotum í sínum fyrsta NBA-leik.







John Wall skoraði 29 stig og gaf 12 stoðsendingar þegar Washington Wizards vann Boston Celtics 113-101. Washington endaði fjögurra leikja taphrinu

Úrslitin úr öllum leikjum næturinnar í NBA:

Los Angeles Lakers - Houston Rockets    99-105    

Utah Jazz - Golden State Warriors    119-79    

Dallas Mavericks - Phoenix Suns    97-124    

Washington Wizards - Boston Celtics    113-101    

Atlanta Hawks - Philadelphia 76ers    113-121    

Indiana Pacers - Charlotte Hornets    93-119

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×