Fótbolti

Besti þjálfari heims og besti leikmaður heims gera lítið án hvors annars í Meistaradeildinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ég sakna þín.
Ég sakna þín. vísir/getty
Gærkvöldið var ekki gott fyrir gömlu félagana Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, og Lionel Messi, leikmann Barcelona. Báðir hafa lengi verið sagðir þeir bestu í sínu fagi; Guardiola besti þjálfari heims og Messi besti leikmaður heims.

Guardiola og lærisveinar hans eru úr leik í Meistaradeildinni eftir 2-1 tap gegn Liverpool í seinni leik liðanna en spænski þjálfarinn fékk að horfa á seinni hálfleikinn úr stúkunni eftir að vera rekinn af velli í hálfleik.

Lionel Messi og félögum hans tókst svo að tapa niður 4-1 stöðu frá fyrri leiknum í Rómarborg þegar að liðið tapaði 3-0 gegn Roma og er úr leik á útivallarmörkum. Ótrúleg úrslit sem hafa vakið heimsathygli.

Guardiola og Messi því báðir úr leik í Meistaradeildinni og eiga ekki möguleika á að vinna hana sem eru reyndar ekkert sögulegar fréttir ef litið er til árangurs þeirra undanfarinna ára. Báðum hefur gengið bölvanlega að vinna Meistaradeildina síðan að leiðir þeirra skildu þegar að Guardiola hætti að þjálfa Barcelona árið 2012.

Tveir titlar á fjórum árum

Saman unnu þeir Meistaradeildina tvívegis, árin 2009 og 2011. Í bæði skiptin lagði Barcelona Manchester United í úrslitaleik en sigurinn árið 2009 var þriðji titilinn af þremur í þrennunni sem Guardiola vann á sínu fyrsta ári sem þjálfari Börsunga.

Barcelona komst í undanúrslitin í Meistaradeildinni árið 2012 á síðasta ári Pep sem þjálfara liðsins en eftir að hann yfirgaf Katalóníu hefur honum aldrei tekist að vinna deild þeirra allra bestu. Messi er með einn titil á sama tíma.

Pep fór til Bayern eftir árs frí frá þjálfun og rúllaði upp þýsku deildinni í þrígang en aldrei tókst honum að komast lengra en í undanúrslitin. Hann tapaði samanlagt 5-0 fyrir Real á fyrsta tímabilinu í Bæjaralandi, 5-3 fyrir sínum gömlulærisveinum í Barcelona á öðru tímabilinu og svo 2-2 á útivallarmörkum gegn Atlético á þriðju leiktíðinni.

Þá yfirgaf hann Bayern München og fékk lausar hendur hjá Manchester City til að búa til sitt lið. Hann kom City-liðinu vissulega tveimur skrefum lengra í ár heldur en í fyrra en á síðustu leiktíð tapaði City fyrir Monaco á útivallarmörkum, 6-6, í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það vita svo allir hvernig fór í ár.

Söknuður

Lionel Messi hefur ekki upplifað mikla sælu í Meistaradeildinni síðan að Guardiola hætti að þjálfa hann. Argentínumaðurinn gerði vissulega aðeins betur en fyrrverandi lærifaðir sinn og vann Meistaradeildina árið 2015 en þá leiktíð vann Luis Enrique, þáverandi þjálfari Barcelona, þrennuna á sinni fyrstu leiktíð líkt og Guardiola gerði.

Á sex leiktíðum síðan að leiðir þeirra skildu hafa Pep og Messi „aðeins“ unnið Meistaradeildina einu sinni (Pep var í fríi í eitt ár). Pep komst þrívegis í undanúrslit en Messi hefur þrisvar sinnum fallið úr keppni með Barcelona í átta liða úrslitum síðan að Pep fór, tvisvar í undanúrslitum, og einu sinni unnið bikarinn.

Svona til að halda eilífum samanburði Messi og Ronaldo á lífi má benda á að Portúgalinn er búinn að vinna Meistaradeildina þrisvar sinnum síðan að Pep og Messi kvöddu hvorn annan og þá er Zinedine Zidane búinn að vinna keppnina tvívegis á sama tíma sem þjálfari.

Pep í Meistaradeildinni frá 2008:

2008/2009: Barcelona, meistari*

2009/2010: Barcelona, undanúrslit*

2010/2011: Barcelona, meistari*

2011/2012: Barcelona, undanúrslit*

2012/2013: Frí frá þjálfun

2013/2014: Bayern, undanúrslit

2014/2015: Bayern, undanúrslit

2015/2016: Bayern, undanúrslit

2016/2017: Man. City, 16 liða úrslit

2017/2018: Man. City, undanúrslit

Messi í Meistaradeildinni frá 2008:

2008/2009: Barcelona, meistari*

2009/2010: Barcelona, undanúrslit*

2010/2011: Barcelona, meistari*

2011/2012: Barcelona, undanúrslit*

2012/2013: Barcelona, undanúrslit

2013/2014: Barcelona, 8 liða úrslit

2014/2015: Barcelona, meistari

2015/2016: Barcelona, 8 liða úrslit

2016/2017: Barcelona, 8 liða úrslit

2017/2018: Barcelona, undanúrslit

*Pep og Messi saman hjá Barcelona


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×