Körfubolti

Emil alblóðugur eftir þetta atvik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Emil Barja og Brynjari Þór Björnssyni lenti saman í þriðja leik Hauka og KR í undanúrslitum Dominos-deildar karla.

KR hafði betur að lokum, 84-83, en leikurinn var járn í járn allan tímann. KR er því komið í 2-1 í einvíginu eftir að hafa lent 1-0 undir.

Í stöðunni 73-73 lent þeim Emil Barja og Brynjari undir körfunni þegar þeir börðu um frákast. Emil lá alblóðugur eftir og þurfti að fara af velli enda fossblæddi úr honum.

Brynjar var dæmdur brotlegur en Haukarnir vildu fá meira en venjulega villu á Brynjar sem var hissa á villunni. Atvikið má sjá hér að ofan.

Næsti leikur liðanna er á laugardagskvöldið í DHL-höllinni en það er spurning hvort að aganefnd KKÍ muni eitthvað skoða þetta atvik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×