Körfubolti

NBA: Úlfarnir loksins í úrslitakeppnina eftir sigur í framlengdum leik upp á líf og dauða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jimmy Butler og Karl-Anthony Towns fagna sigri Minnesota Timberwolves í nótt.
Jimmy Butler og Karl-Anthony Towns fagna sigri Minnesota Timberwolves í nótt. Vísir/Getty
Minnesota Timberwolves varð í nótt sextánda og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Timberwolves liðið vann þá hreinan úrslitaleik á móti Denver Nuggets. Nú er ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni í ár.

Jimmy Butler hefur spilað margoft í úrslitakeppninni með Chicago Bulls og hann átti mikinn þátt í því að Minnesota Timberwolves verður þar í fyrsta sinn í fjórtán ár. Ekkert lið í deildinni var búið að vera svo lengi í burtu frá úrslitakeppninni.

Butler skoraði 31 stig í 112-106 sigri á Denver Nuggets en staðan var 101-101 eftir venjulegan leiktíma.



 

Karl-Anthony Towns bætti við 26 stigum og 14 fráköstum í þessum fyrsta leik í 21 ár þar sem tvö lið spila hreinan úrslitaleik á lokakvöldi deildarkeppninnar um hvort liðið kæmist í úrslitakeppnina.

„Ég mun örugglega sofna í kvöld og vakna síðan upp um miðja nótt og byrja að gráta,“ sagði Karl-Anthony Towns sem var aðeins átta ára gamall þegar Minnesota Timberwolves var síðast í úrslitakeppninni.

Denver Nuggets komst í þennan úrslitaleik með því að vinna sex leiki í röð en sat eftir með sárt ennið. Nikola Jokic var atkvæðamestur hjá liðinu með 35 stig og 10 fráköst. Þetta er fimmta árið í röð sem Denver liðið missir af úrslitakeppni.



 

Joel Embiid og JJ Redick voru ekki með og Ben Simmons skoraði ekki í fyrri hálfleiks. Philadelphia 76ers liðinu tókst samt að landa sextánda sigri sínum í röð þegar liðið vann Milwaukee Bucks 130-95. Nýliðinn Markelle Fultz náði sinni fyrstu þrennu á ferlinum, 13 stig, 10 frásköst og 10 stoðsendingar, Justin Anderson skoraði 25 stig og Dario Saric var með 24 stig.

Joel Embiid hitaði upp með svarta grímu til að verja brotið nefið sitt en var síðan ekki með í leiknum og talaði um að missa nær örugglega af fyrsta leiknum í úrslitakeppninni um komandi helgi.

LeBron James lék í sínum 82. leik á tímabilinu og náði því í fyrsta sinn á ferlinum að spila alla leikina. Hann spilaði hinsvegar ekki mikið og settist á bekkinn eftir að hann skoraði sitt tíunda stig þegar Cleveland Cavaliers tapaði 98-110 á móti New York Knicks.

Anthony Davis var með 22 stig, 15 fráköst, 4 varin skot og 3 stolna bolta þegar New Orleans Pelicans tryggði sér sjötta sætið í Vesturdeildinni með 122-98 sigri á San Antonio Spurs. Rajon Rondo bætti við 19 stigum og 14 stoðsendingum og var með 21 stig og 15 fráköst.

Wayne Ellington skoraði 32 stig fyrir Miami Heat sem tryggði sér sjötta sætið í Austurdeildinni með 116-109 sigur á Toronto Raptors í framlengdum leik.





Úrslit úr öllum leikjum í NBA í nótt:

Los Angeles Clippers - Los Angeles Lakers    100-115    

Portland Trail Blazers - Utah Jazz    102-93    

Sacramento Kings - Houston Rockets    96-83    

Boston Celtics - Brooklyn Nets    110-97    

Chicago Bulls - Detroit Pistons    87-119    

Cleveland Cavaliers - New York Knicks    98-110    

Miami Heat - Toronto Raptors    116-109 (105-105)    

Minnesota Timberwolves - Denver Nuggets    112-106 (101-101)    

New Orleans Pelicans - San Antonio Spurs    122-98    

Oklahoma City Thunder - Memphis Grizzlies    137-123    

Orlando Magic - Washington Wizards    101-92    

Philadelphia 76ers - Milwaukee Bucks    130-95



 





Liðin sem mætast í úrslitakeppninni í ár eru:

- Austudeildin -

(1) Toronto Raptors - (8) Washington Wizards

(2) Boston Celtics - (7) Milwaukee Bucks

(3) Philadelphia 76ers -. (6) Miami Heat

(4) Cleveland Cavaliers - (5) Indiana Pacers

- Vesturdeildin -

(1) Houston Rockets - (8) Minnesota Timberwolves

(2) Golden State Warriors - (7) San Antonio Spurs

(3) Portland Trail Blazers - (6) New Orleans Pelicans

(4) Oklahoma City Thunder - (5) Utah Jazz

Úrslitakeppni NBA-deildarinnar hefst strax á laugardaginn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×