Viðskipti innlent

Penninn kaupir lundabúðir Sigga í Víking

Jakob Bjarnar skrifar
Siggi í Víking ætlar að snúa sér að öðru en hann hefur selt Pennanum verslunarkeðju sína.
Siggi í Víking ætlar að snúa sér að öðru en hann hefur selt Pennanum verslunarkeðju sína. visir/stefán
Sigurður Guðmundsson, sem er vel þekktur kaupmaður á Akureyri og hefur undanfarna tvo áratugina verið kenndur við verslunarkeðju sína Víking – Siggi í Víking – hefur selt þær búðir sínar Pennanum. Að sögn RÚV er söluverðið ekki gefið upp.

Sigurður greinir frá þessu í ítarlegri Facebookfærslu, þar sem hann segir að komið sé að kaflaskiptum í lífi sínu. Siggi, sem er pennafær vel, en það þekkja vinir hans á Facebook, og liggur hvergi á skoðunum sínum þegar svo ber undir, segist jafnvel koma til greina að snúa sér að skriftum.

Fjöldaframleitt drasl

Vísir tók viðtal við Sigurð fyrir rúmlega tveimur árum en þar varpaði hann á opinskáan hátt ljósi á það hvernig kaupin gerast á eyrinni í verslun sem snýr að ferðamannasprengingunni á Íslandi.

Hann sagði þá megnið af þeim varningi fjöldaframleitt drasl frá Kína. Álagning í hinum svokölluðu lundabúðum væri óheyrileg, og þó samkeppni sé í smásölunni er hún undir hælnum á heildsölum og birgjum og þar hafa fáir aðilar ráðandi stöðu.

Lundabúðirnar hafa sprottið upp á undanförnum árum og hafa sett svip sinn á Ísland allt.visir/stefán
Þar situr hagnaðurinn eftir. Sú staða, sem Sigurður líkti við einokun, þýðir að þó búðirnar séu margar þá séu þetta allt meira og minna sama dótið sem selt er í búðunum – sem þýðir einsleitni. Þessi varningur er oftar en ekki seldur sem íslensk framleiðsla og kaupendur blekktir markvisst með þeim hætti.

Flestar voru Víking-búðirnar sjö

Í Facebookfærslu sinni í dag segir Siggi meðal annars, þetta hafa verið ótrúlegan tími.

„Frá því að ég opnaði fyrstu verslunina á Akureyri hefur reksturinn stækkað og minnkað eftir árum. Mest var umleikis þegar ég var með 7 verslanir undir merkjum The Viking. Á sl. ári voru þær 5. Í þennan tíma hef ég staðið einn í þessu með góðu samstarfsfólki og fjölskyldu. Stoltastur er ég samt yfir þessu vörumerki. The Viking er einfaldlega best. Líka er gaman að segja frá því að fyrirtæki á Akureyri sé með nokkur útibú í Reykjavík. Ekki öfugt einsog oftast er,“ skrifar Sigurður í pistli á Facebooksíðu sinni.

Í tilkynningu frá Pennanum í morgun kom fram að Penninn hefði fest kaup á rekstri og birgðum verslana The Viking af H-fasteignum með það fyrir augum að reka þær áfram undir sama nafni. Verslanirnar hafa verið reknar í félaginu H-fasteignir frá því í febrúar þegar Penninn var færður úr félaginu Hóras yfir á H-fasteignir.

Þær breytingar voru gerðar í kjölfarið á aðgerðum lögreglu, að beiðni Tollstjóra í janúar, þar sem verslunum Viking á Akureyri og Reykjavík var lokað vegna vangoldinna skatta.

Fréttin var uppfærð klukkan 23:16.


 


Tengdar fréttir

Lundagróðinn er mikill og honum er misskipt

Milljarða velta er af rekstri hinna svokölluðu lundabúða. Álagning er óheyrileg – varan er að mestu fjöldaframleidd í Kína; seld sem íslensk sé.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×