Innlent

Lögreglustjóra gert að bera vitni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Páley Borgþórsdóttir
Páley Borgþórsdóttir
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, þarf að bera vitni í máli Héraðssaksóknara gegn manni sem grunaður er um heimilisofbeldi og ofbeldi gegn barni sínu. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem staðfesti með því úrskurð Héraðsdóms Suðurlands.

Maðurinn er ákærður fyrir að hafa veist að eiginkonu sinni í þvottahúsi á heimili sínu skömmu fyrir jól 2016, slegið hana í andlit eða hrint henni þannig að hún féll á borð. Þá er honum gert að sök að hafa í kjölfarið veist að dóttur sinni og meðal annars slegið hana í bringuna.

Ákærði vildi fá að leiða Páleyju sem vitni fyrir dóminn en sækjandi lagðist gegn því. Páley var á bakvakt nóttina sem atvikið átti sér stað og mætti á lögreglustöð vegna þess. Í skýrslutöku af henni í mars í fyrra kom fram að hefði maðurinn ekki komið með góðu á lögreglustöð hefði komið til greina að kalla út sérsveitina til að aðstoða við handtöku hans. Til þess kom ekki.

Að mati dómara í málinu var ekki útilokað að Páley gæti borið vitni um málsatvik þó að hún hafi ekki komið á heimili mannsins við handtökuna. Var því úrskurðað að henni bæri að gefa vitni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×