Fótbolti

Læknir Arsenal heftaði saman fót Aaron Ramsey og hann hélt áfram

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aaron Ramsey var borinn af velli en snéri til baka.
Aaron Ramsey var borinn af velli en snéri til baka. Vísir/Getty
Aaron Ramsey lék allan leikinn með Arsenal i gærkvöldi þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.

Það er hinsvegar ótrúlegt að Aaron Ramsey hafi klárað leikinn miðað við myndina sem hann setti inn á Instagram eftir leikinn.

Aaron Ramsey fékk stóran skurð á fótinn eftir að hafa lent í tæklingu í fyrri hálfleiknum. Hann fór inn í klefa en var ekki skipt útaf. Ramsey snéri síðan aftur inn á völlinn.

Aaron Ramsey þakkaði lækni Arsenal fyrir inn á Instagram fyrir að hjálpa sér við að komast aftur inn á völlinn. Læknir Arsenal virðist hreinlega hafa heftað saman sárið á legg Aaron Ramsey. Það má sjá myndina af fæti Aaron Ramsey hér fyrir neðan.





Ramsey mætti aftur inn á völlinn með í það minnsta sex hefti í fætinum og hann lék allar 90 mínúturnar.

Hann gerði gott betur en það því Ramsey tryggði Arsenal endanlega sætið meðal þeirra fjögurra bestu með því að jafna metin í uppbótartíma leiksins.

Ramsey skoraði alls þrjú mörk í leikjunum tveimur á móti CSKA Moskvu í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar en Arsenal vann samanlagt 6-3. Þessi þrjú mörk velska miðjumannsins gerðu því útslagið.

Aaron Ramsey missti af átta fyrstu leikjum Arsenal í Evrópudeildinni á þessu tímabili en hefur skorað fjögur mörk í fjórum leikjum í útsláttarkeppnini. Hann er nú alls með sjö mörk í síðutu átta leikjum í öllum keppnum.

Aaron Ramsey fann vel fyrir þessu og sárið var stórt.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×